Heimir - 01.04.1908, Blaðsíða 3

Heimir - 01.04.1908, Blaðsíða 3
honum hroll, eöa falli yfir hann magnleysi eöa grípi hann æstur taugatitringur, hrópar hann upp a5 hann hafi „öölast trú Samskonar skoöun á trú, er alment innan allra Evangelisk Orþodoxra'kyrkna. Trúin er varningur er menn veröa aö eign- ast, óskyldur mannlegu eðli, trygging gegn öllum mannlegum meinurn, syndar, vanþekkingar og þjáningar. Aftur á móti frá hinni hliðinni eru trúarbrögðin skoöuö sem eiginlegleiki mannlegs meövitundarlífs, og er þaö undan- tekningarlaust skoöun frjálstrúar manna. Trúin er sérskilinn kraftur meðfæddur mannlegu lífi, alls ekki utan að komandi, en líkur öðrum eiginlegleikum mannsins tilheyrandi iíísheildinni sjálfri, og rná æfa hann og göfga, beina honum og brúka hann í allri mannlegri starfsemi, eins og hægt er að beina og stjórna hverju öðru virkilegu afli. Hún er auk heldur sá æösti kraftur rnannlegrar tilveru, er vér þekkjum, því hún ræður aö miklu leyti eðli og tilgangi allra mannlegra gjörða. Þessi skoö- un hefir fengiö vald yfir flestum hugsandi mönnum, sérstaklega nú á síðari árum, síðan framþróunar kenningin varö kunn. Strax og mannlegur hugur fékk sjálfs-meövitund fékk hann meðvitund um þaö, sem ytra bjó og ekki var hann sjálfur. Og er tímar liöu, fann hann að innra bjó örlítið brot þess eilífa skilnings á réttu og röngu, er stjórnaði og leiðbeindi hugsunum hans. Og eftir því sem óx reynsla mannkynsins, óx einnig til- finningin fyrir leyndardómi lífsins, unz manr.ssálin smáa fann sig knúða, að ööru leytinu, til aö laga sig eftir ytri kringum- stæöum, og aö hinu leytinu eftir hinni ævarandi meövitund um tilveru guðs. Og frá þessum orsökum hefir þroskast hin mikla undursmíö vorrar andlegu tilveru, unz nú, að vér finnum að trúin hefir öðlast þann kraft og það itjnra vald, er mannkynið sjálft getur ekki umflúiö þótt þaö svo gjarnan vildi. Þetta er almennasta skoöanin um eöli trúarbragöanna, meðal frjálstrúarmanna nú. Og láta þeir sig þaö mestu varða, að öllu afli andlega lífsins sé viturlega stjórnað og beitt í þarfir mannlegra framfara. Ef nokkuð á að geta haft varanlegt gildi má þaö ekki vera gagnstríðandi sainvizku rnanna, þaö veröur aö vera eilíflega satt, trúarlegs eðlis! Sé þessu afli ekki stjórn-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.