Heimir - 01.04.1908, Blaðsíða 17

Heimir - 01.04.1908, Blaðsíða 17
H E I M I R 233 ir sonarins er vér leiddurn á glapstigu eSa faöir dótturinnar er vér svívirtum. Hverjir veröi sessurautar vorir þar, vitum vér ekki, en eins líklegt þaö veröi þessir eins og hinir, er vér skriC- um íyrir og kysstum á höndina á. Ekki víst vér fáum aö vera þrœlar sama konungs hinu megin og skipa hirövist með honurn. Því komi kyrkjan oss til himna-getur hún ekki sent alla hina til helv. oss til þægöar. Þaö er hægt aö þægjast viö ambátt drottins hér í heimi, en hún á lítinn mátt fyrir handan gröf. Hún getur skaiiö burt syndirnar hér, og hvítfágað klæöin, þótt klæöafald- urinn hafi nokkrum sinnum dregist ofan í. Hún getur þaö í sinni ágætu syndahreinsunar maskínu, sent sín ölduimenni og öldurkvendi af staö, hreingjörninganna þeytispjcld er flestrm ná úr blettunum— og láta þá „segja upp söguna aftur, söguna þá í gær." Segja upp söguna aftur af glataöa syninum, er endi ööru vísi en saga Jesú Krists, ekki aÖ týndi sonurinn komi heim heldur útskúfi faðirinn honum alveg, leggi stund á sína eigin betrun, arfleiöi heimasoninn er trúr var sinni köllun og trúrvar sinni barnatrú. Segja söguna af Júdasi aítur: Eitt sinni var maöur er hét Júdas. Hann var samhalds- samur á silfurpeninga. Þegar hann dó arfieiddi hann kyrkjuna- aö þeim svo hún gæti keypt fyrir þá grafreit. Hann var góöur maður, Júdas, og. var þetta ekki fallegt." Segja söguna af manninum er fékk fingurmein og misti barniö sitt, af þvf hann gekk úr söfnuðinum! Hreinsunin er góö, en hún nær ekki yfir um, af því hún nær ekki til karaktermanna. Hún strýkur yfir misfellur dag- legs tómleika en ekki yfir misfellur karaktersins, en karakterinn illur eöa góður, er það eina va'ranlega í manneðlinu, er hér eftir getur varað. Þekking vor á eilífðinni er þekking vor á mann- lífinu sjálfu. Þetta viturn vér um eilífðina, og aö hér á jörö er eilífð sumra hluta. I þessari stundlegu eilífö, ef það mætti nefnast svo, er það sannleikurinn nakinn eöa klæddur, er gefur ódauð- leika hugsunurn, stefnum, gjöröum mannanna, öllum hlutum er hér geta lifaö og ríkt. Mun ekki sarna lögmál ráða annar- staöar í tilverunnar heimi?

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.