Heimir - 01.10.1908, Blaðsíða 9

Heimir - 01.10.1908, Blaðsíða 9
HEIMIR Si hvetja til hreysti og karlmensku. Vér teljum þau fyrst, þvl hreystimál er yfirtónn allra hans kvæSa. Eins og Þormóður, skemtir hann mönnum með „Húskarlahvöt". Má þá fyrst til- nefna kvæðiö .Stormur", (Ljóðm. bls. i), inngangskvæðið að tímaritinu „Verðanda" og síðar að ljóðabókinni. „Þú skefur burt fannir af foldu og hól, þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól og Joftilla dáðlausa lognmollu hrekur og lífsanda starfandi hvarvetna vekur, Þá var skáidið 20 ára, er hann kveður þetta, og er þessi samstefja þar í líka. „Eg elska þig kraftur sem öldurnar reisir, eg elska þig kraftur sem þokuna leysir." Eins og draumur er löngu síðar átti að koma fram. Þá má elcki gleyma kvæðinu „Hvöt" (bls. 72.) „Breiðið arma báða móti blænum þótt hann við og við fari í storm og byrstur brjóti brúðurusl er dýrkið þið. Eða kvæðinu „Undir Ivaldadal", er Dr. Björn Olsen segir að skáldið vilji sem fæst um tala nú á fullorðins árum, finst eitt af stórorðagnægðinni, er hann gjarna ætti að þurka út með sínu „Ágæta þerriblaði:" („Eg vildi óska’ að það ilti nú blek í ærlegum straum yfir blaðiö hjá mér, svo eg geti sýnt, hve mín framkvæmd er frek og fádæma gott mitt þerriblað er.") Sé svo, lætur skáldið alt of haröan dóm yfir sjálfan sig ganga, því hversu margt og fagurt yrði þá ekki að þerra út, er ber með sér æskuófyrirlæti, og er þetta eitt vorra einkennileg- ustu og beztu kvæða íslenzkra „Vér þurfum á stað þar sem stormur hvín, og steypiregn gjörir hörund vott, svo þeir geti skolfið og skammast sín er skjálfa vilja, það er þeirn gott."

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.