Heimir - 01.01.1911, Page 4

Heimir - 01.01.1911, Page 4
IOO H E I M I R Á árinu hefir hópur manna skiiiö leiöir viö samþjóðamenn sína og safnast á burt,—svo stór hópur og merkur, aö þaö er til efs, aö nokkurt undanfariö friöar ár hafi Hutt burtu jafn fríðan fiokk mikilh.efra Og göfugia tnanna. I hópi þessum eru menn huignir aö aldri; menn er litiö hafa þrjár kynslóöir komast á fullþroska aldur og verið kennendur allra þrigijia þ > mest hafi sú síöasta numiö, enda skilyröin veriö bezt er þjóöfélaginu hefir munaö þau spor er hinar tvær höföu stigio; menn á iniöju aldurs- skeiöi; inenn viö hádegis stað merkrar og efnisríkrar æfi; menn er safriaö höföu því stærsta er þjóðfélag þeirra haföi aö bjóöa, innofið þaö í eigin persónu og þannig getiö þ.í fyrirtnynd meö vitnisburði innra manngildis og ytra áliti, er hiö sál-frjálsa stóra og manndórnsíulla fær skapaö. Alla þessa menn höfum vér þekkt og þó misjafnlega inikiö, suma af sjón, suma af lífshræring þeirri er þeir hafa vakiö í anda- stefnum mannfélagsins. —Boöarnir, veikir og brotnir, en boðarnir saint, náö til hugarstranda vors eigin hugsjóna lífs. Allir þessir tnenn hafa tilheyrt einum og sama flokki, er til þess kom aö unna víðsýni, frelsi og mannréttindum og vér veriö lærisveinar þeirra og áhangendur, í smáum stvl—aö svo miklu leyti aö vér höfum kunnaö aö unna hinu sama. Svo fríöur er flokkur frelsisins og mannréttindanna ! Fengur ætti þaö hverjum aö vera, aö mega telja sig til þess flokks, þó ekki væri meira. Þaö getur ekki fríöari svipheiöari höföinglegri flokk. Ver getum leitaö í samtíöinni, í liöinni tíö, um alla mannkynssöguna og sá flokkur ber alstaöar og ætíö af öllutn öðrum, af öllurn körlum og konum. Er þó aöal andstæöi flokk- urinn skrautbúnari. Þar skartar margri kórónu og veldissprota. bagal og mitri og sveröi og róöukrossi. En—og ekki þarf á aö minna, veldissprotinn og bagallinn, sveröiö og róöukrossinn er brákaöur reyr og kórónur og mitur laufkranz litverpur og feyskinn. Aö sumir þessara inanna, er áriö hefir kvatt á burt meö sér, uröu aö fara, segir aldur þeirra sjálfra til. En samt veldur þaö nokkrum svipbrygöum aö hér eftir, er heimurinn nefnir nafnið þeirra, nefnir hann þaö, sem þeirra er horfnir eru á burtu. Þaö

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.