Heimir - 01.06.1911, Blaðsíða 15

Heimir - 01.06.1911, Blaðsíða 15
HEIMIR 231 Þá var eftirfylgjandi fundarályktun lesin og samþykt. “Meö því aö einn af starfsmönnum vorum og félagsbræörum, séra Albert E. Kristjánsson hefir ekki getaö komiö á þing þetta, vegna veikinda á heimili hans, viljum vér, hiö sjötta þing ís- lenzkra Unítara í Vesturheimi, hér meö láta í ljósi hjartanlega samhygð vora með honum og fjölskyldu hans og söknuð yfir fjarveru hans. Einnig óskum vér þess af heilum hug aö heim- iliskringumstæöur hans breytist fljótt á bezta veg, og sendum honum hjartans kveöju vora meö þakklæti fyrir bréf frá honum, meðtekið í byrjun þingsins. Við undirritaðir leggjum til að ályktun þessi sé samþykt, færö inn á fundarbók og send í eftirriti til séra A. E. Krfstjáns- Sijnar. ” G. Árnason Rögnv. Pétursson Lagt var til af R. Péturssyni, að forseti skipaði þriggja manna útnefningarnefnd. Tillagan studd af B. B. Olson og samþykkt. 9 Forseti útnefndi þessa : Jóh. Sigurösson J. B. Skaptason H. Pétursson G. P. Magnússon bauð að gefa kyrkjufélaginu eftirrit af fundargerðum snertandi únítarisku hreyfinguna í Nýja Islandi á fyrstu tímum hennar. Séra R. Pétursson lagði til að boði Mr. Magnússonar væri tekið með þökkum. Tillagan var studd af G. J. Goodmundssyni og samþykt í einu hljóði. Þá var lagt til og samþykt að fundi væri frestað til kl. 8, er trúmálafundur sá, er auglýstur hafði verið, átti að byrja. Fundi slitið. Klukkan 2 e.h. á sunnudaginn fór fram guðsþjónusta og prédikaði séra Rögnv. Pétursson. Gerði hann “Köllun tímans, andleg kyrkja” að umræðuefni sínu. Fjöldi manns var við- staddur.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.