Heimir - 01.03.1914, Page 10
130
H E IMIR.
Skrifari sagði frá, að á síðastliðnu hausti hefði verið stofnaður
Canadian Conference, sem ætlast væri tii að næði út yfir alla únítar-
iska söfnuði í Canada. Tilgangurinn með stofnuninni væri sá,
að sameina alla únítariska söfnuði í Canada, sérstaklega hina
enskumælandi í eina heild.
ó. Pétursson gerði tillögu sem að forseti skipaði 3 manna út-
nefningarnefnd. Tillagan var studd og samþykt. Forseti skipaði
þessa í nefndina: Níels Hallsson, Guðbr. Jörundsson og Jónas
Halldórsson.
Skrifari lagði til og P. Bjarnason studdi, að fundi væri slitið
og aftur tekið til starfa kl. 10 næsta morgun. Samþykt.
Fundi slitið.
IV. FUNDUR.
Pjórði fundur var settur kl. 11 f.h. sunnudaginn, 21 júní, séra
A. E. Kristjánsson las 13 kap. í fyrra Korintubréfinu og sálmurinn
nr. 518 í sálmabókinni var sunginn.
Skrifari las fundargjörð síðasta fundar og var hún staðfest.
Nefnd sú, sem sett var til að íhuga útbreiðslumálin, lagði fram
eftirfarandi nefndarálit:
Nefnd sii, scm skipuð var til að athuga útbreiðslumálin, leyfir
sér hérmeð að leggja fram svoliljóðandi álit.
Á þessum tíma eru aðeins tveir starfandi prestar innan kyrkju-
félagsins, er þjóna söfnuðum í Winnipcg, Mary Hill og við Grunna-
vatn, og er tími þeirra að fullu upptekinn í þjónustu þessara
safnaða. Svæðið, sem liggur að Manitobavatni mætti auka út
norður með vatninu, og virðist nefndinni tfltækilegast undir nú-
verandi kringumstæðum, að ætla presti þeim, er þjónar á þessu
svæði að sinna útbreiðslumálum þar, að svo miklu leyti sem hann
getur komið því við tímans vegna.
Það sem nefndinni virðist mest til hindrunar útbreiðslustarfi
félagsins er skortur á starfandi prestum.
Af þeim svæðum, þar sem nefndinni virðist þörf á og möguleik-
ar til kyrkjlegrar starfsemi, finst henni sjálfsagðast að líta fyrst til
þeirra, er starfsemi liefir verið hafin á, en lagst niður aftur vegna