Heimir - 01.03.1914, Qupperneq 12
132
HEIMIR.
P. Bjarnason sagði að útbreiðslumálanefndinni liefi ekki
sést yfir það, að séra Rögnv. Pétursson væri ekki, nú sem stæði
starfandi, og að það væri mikill skaði. En nefndin liefði ekki viljað
að neinu leyti blanda sér inn í þau mál, sem gætu verið sérmál ein-
stakra safnaða.
G. Árnason sagðist álíta, að það eina sem kyrkjufélagið gæti
gjört í þessu máli væri að fara fram á við séra Rögnv. Pétursson að
hann tæki aftur upp Field Agent’s starfið, en hvaö snerti prests-
þjónustu á Gimli, yrði það eðlilega að vera milli lians og safnaðarins
þar.
B. B. Oison lagði þá fram eftirfylgjandi tillögu:—Að þingið
óski eftir að séra Rögnv. Pétursson haldi áfram sínu fyrra starfi sem
Field Agent kyrkjufélagsins, með því sérstaka augnamiði, að bæta
úr hinum brýnustu þörfum Gimli-safnaðar og einnig Nýja íslands
og Saskatchewan að svo miklu leyti sem tími hans og kringumstæð-
ur leyfa. Tillagan var studd af Ól- Péturssyni.
Forseti sagðist álíta, að þessi tillaga gæti ekki komið til greina
meðan nefndarálitið sjálft lægi fyrir.
Séra A. E. Kristjánsson sagðist álíta að tillaga B. B. Olsorís
væri óþörf, og málinu fullvel borgið eins og frá því væri gengið í
nefndarálitinu.
B. Pétursson gerði tillögu um að nefndarálitið væri samþykt.
Tiliagan var studd af G. Guðmundssyni og samþykt.
P- Bjarnason óskaði eftir að álit útnefningarnefndarinnar
kæmi fram áður en gengið væri til atkvæða um tillöguna.
Séra A. E. Kristjánsson sagði að í tillögunni væru ekki nógu
skýrt sundurgreind mál kyrkjufélagsins og mál Gimli-safnaðar.
B. B. Olson sagði að sér fyndist það ekki rétt á litið, og að
engin ill eftirköst þyrfti að óttast af því, kvaðst reiðubúinn að
ábyrgjast það.
Forseti sagði að kyrkjufélaginu væri vafalaust ljúft að séra R.
Pétursson yrði aftur Field Agent, en kvaðst fyrir sitt leyti ekki
vilja að félagið samþykti neina tillögu um áskorun, sem gæti á
nokkurn hátt komið sér illa fyrir hann í núverandi stöðu lians.
Sagðist ennfremur álíta að félaginu væri gagn að starfi hans eins
og það nú væri. Beiðni um þjónustu til Gimli safnaðar ætti að