Heimir - 01.03.1914, Blaðsíða 19

Heimir - 01.03.1914, Blaðsíða 19
HEIMIR. 139 sinnar “skal hún fjötruö og talin með þrælunum”. Ekki má selja hana, nema liún einnig sé harnlaus. I hessu sambandi má minna á söguna af Hagar í sextánda kap. fyrstu Móse bókar. Lögin um arftöku cru sanngjörn og réttlát. Til dæmis, ef maður hefir gifst tvisvar og á tvéer fjölskyldur, tekur hver fjölskylda heimanmund móður sinnar, og eignum föðursins er skift jafnt á milli beggja. Ef maður hefir gert börn ambáttar sinnar að löglegum erfingjum sínum meðan hann var á h'fi, þá fá þau hluta af eignum hans næst á eftir skilgetnum börnum. Ambáttin og börn hcnnar fá ávalt freisi við dauða mannsins. Sérstök ákvæði eru viðvíkjandi dóttur hjákonu. Ef hún giftist mcðan faðir hennar er á lífi og fær heimanmund, getur liún engar frekari kröfur gert til fjármuna hans; en fái hún ekki heimanmund frá föður sínum, eru bræður hennar skyldir til að sjá henni fyrir honum og útvega henni mann. Svlki maður stúlku, missir liann brúðarverðið, sem hann hefir borgað fyrir hana. Ef faðir stúlkunnar hættir við að gifta hana þeim, sem liann hefir lofað henni, verður iiann að borga brúðar- verðið tvöfait til baka. Ef rógburður hefir valdið miskiíð milli föð- ur og mannsefnis, má sá sem kom rógburðinum af stað ekki giftast stúlkunni. Lögin viðvíkjandi konum sem eru ósjálfbjarga vegna ein- hvers sjúkdóms, eru mjög mannúðleg. Maðurinn má giftast annari, en hann verður að sjá fyrri konu sinni fyrir lífsnauðsynjum meðan hún lifir; nema hún vilji heldur kalla eftir hcimanmund sínum og fara heim tii föður síns aftur. Þess má geta, að gift kona var ávalt talin að tiiheyra fjölskyldu föður síns og var jafnan kend við liann, en ekki mann sinn. Ef þræll gekk að eiga dóttur frjáls manns (sem sjálfsagt liefir verið mjög sjaldgæft) þá gekk helmingurinn af eignum þeirra beggja til eiganda þrælsins, þegar þrællinn dó; en aldrei gat eigandinn gjört nokkurt tilkail til barna þeirra. Ógift stúlka gat aldrei kosið sér mann, en kona, sem einu sinni hafði gifst, livort sem hún var ekkja eða skilin við mann sinn gat ráðið hverjum hún giftist, aðeins mátti ekkja, sem liafði ung börn fyrir að sjá ekki giftast aftur án samþykkis dómara, og varð dómar- inn að grennslast eftir livort seinni maðurinn gæti og viidi ala börnin upp á viðeigandi liátt. Eignir fyrri mannsins voru þá verðlagðar og gcymdar börnum hans með löglegum samningi.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.