Heimir - 01.03.1914, Blaðsíða 28

Heimir - 01.03.1914, Blaðsíða 28
148 H E I M I R . Prófessor George Boras í Kolozsvar á Ungverjalandi, forstöðu- maður prestaskóla únítarakyrkjunnar l>ar i iandi, hefir lcitað allra mögulegra uplýsinga um uppruna nafnsins og komist að þeirri niðurstöðu, að skoðun sú, sein hygð er á ummælum Péturs Bods sé röng. Hann segir:—“Skýring Péturs Bods á uppruna nafnsins Únitari styðst ekki við neinn sögulegan sannleik og er í mótsetningu við hina almennu þýðingu orðsins, sem byrjaði í aðgreiningu frá nafninu þrenningartrúarmaður (trinitarian).” Hann licldur áfram og segir, að þrátt fyrir nákvæma ieit hafi liann ekki getað fundið nafnið fyrir árið 1600. Elzta ritið, sem ])að finst í er lagagreinar frá þingi, sein lialdið var í bænum Lecfalva í október 1600. 3>ar er talað um fjóra löglega trúflokka (receptæ religiones), nefnilega—“Religio Romana Catliolica, Lutherana, Calviniana et Unitaria”—rómversk kaþólsk trú, Lúthcrtrú, Kalvínstrú og Únitaratrú. Þar sem nafnið cr notað þarna 1 iagamáli álítur prófessor Boras, að það hafi áður verið notað meðal annara en Únítara sjálfra, og getur ]>að l>á liafa verið gefið þeim af mótstoðumönnum þeirra, vegna þess að það fól f sér aðaltrúvillu þeirra, sem fallnir voru frá þrenningarkenningunni. Nafnið er dregið af latneska lýsingarorðinu urius, einn. Únitarar kölluðu lirenningartrúarmennina trinitarii. 8amt hefir nafnið að líkindum ekki tíðkast um daga Franciscus Davidis, sein var aðal- stofnandi únitarakyrkjunnar í Transylvaniu og dó 1579, því það finst hvergi i þeim ritum Davidis, sem enn cru til og ekki heldur í tilvitn- unum lians úr riti helzta ínótstöðumanns síns, er Melíus hét og var Kalvínstrúarmaður. Ýms önnur nöfn finnast, sem þeir, únitararnir,. gáfu sér sjálfir, ]>ar á meðal Ecclesiae Consentientes, (kyrkjur sem koina sér saman), sem Boros álítur að þýði ]>á, sein eru sammála móti þrenningai'trú A]>anasíusar, unum Deum profitentes (]>eir sem viður- kenna einn guð), o.fl. Einnig finnast nöfn, sem mótstöðumenn þeirra gáfu þeim í óvirðingarskyni, svo sem villutrúannenn, fylgj- endur Múhameðs og fleira af l>ví tagi. Það var ein af ásökunuiu þrenningartrúarmanna að Únitarar hefðu sömu trú og Tyrkir. jÞess vegna tók Sigismundur konungur fram við almenna trúniála- kai>])i'æðu, sem haldin var að honum viðstöddum, að tilgangur sinn með ]>ví að stofna til kappræðunnar væri meðfram sá að hreinsa sig og aðra, sem fylgdu hinni nýju stefnu, af nöfnum, sem bentu á. að þeir væru Tyrkir.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.