Heimir - 01.03.1914, Side 31
HEIMIR.
151
læk. Þar er þaö látiö fúna niður; nema ef ílátiö, sem l>að er í er
bátur, þá eru lítil mannalíkneski búin til úr tjöru, sett í bátinn og
hann látinn berast niður ána eöa dreginn út á sjó. Enginn nema
særingarmaðurinn má snerta andalíkeskið eftir aö særingarnar cru
afstaðnar. Vanaiega er einhverskonar samband milli andans og
sjúkdómsins, þannig að andar sem búa í ioftinu valda höfuðverk
og liitasótt, skógarandar fótabólgu o.s. frv. Þegar búið er að ganga
frá iíkneskinu, sem veikin á nú að vera komin í, er álitið að sjúk-
lingnum sé albatnað.
Úr ýmsum áttum.
Ameríska tjnitarafélagið ásamt forstöðunefndinni fyrir alþjóða-
fundum tJnitara og annara frjálslyndra kristinna manna hafði, áður
en stríðið byrjaði, í undirbúningi trúmálafundarliöld í Austur-
löndum. Var svo til ætlast að nokkrir fundir yrðu haldnir á þessu
ári í Japan, Kína og Indlandi og tilraun gjörð til að koma á sam-
vinnu meðal frjálslyndra manna í öllum þessum löndum og lijá
Vesturlandaþjóðunum. Stríðsins vegna hefir fundum þessum verið
frestað til næsta árs. En búist er við að þeir beri góðan árangur,
því meðal mentaðra manna í Austurlöndum eru margir, sem að-
liyllast stefnu þá í trúmálum, sem liefir verið ráðandi á alþjóða
trúmálafundunum, sem lialdnir liafa verið síðan um aldamótin
síðustu, en það er í öllum aðalatriðum únitarisk stefna.
Ekki alls fyrir löngu var stofnaður únítariskur félagsskapur á
Egyptalandi. Sá heitir Ibrahim Zhaki, sem er forstöðumaður hans,
og er liann kennari í aröbskum bókmentum við skóla ensku stjórn-
arinnar í Kaíró. Eélagsskapur þessi hefir nú þegar allmarga fylgj-
endur og heldur uppi guðsþjónustu gcrðum með sama hætti og
tíðkast í trnitarakyrkjum í Ameríku. Safnaðarmeðlimirnir liafa
víst flestir, ef ekki allir, verið múhameðstrúarmenn áður.
Hinn nafnkendi enski stjórnmálamaður, Joseph Chamberlain,
sem dó fyrir nokkrum mánuðum, var einn með frcmstu leikmönnum