Muninn - 01.03.1978, Qupperneq 26
VieiAL VID
Það var hér á dögunum
þegar æfingar á Hlaup-
vídd sex stóðu sem hæst,
að við blaðamenn Mun-
ins tókum okkur til og
skunduðum niður i leik-
hús og höfðum tal af
leikstjóranum, þ.e.a.s.
Herði Torfasyni, og fer
það spjall hér á eftir.
Bisn. - blaðasnápur.
HT. - Hörður.
Blsn: Það væri e.t.v.
ekki galið ef þú
vildir byrja á
að segja okkur
hvað þér finnst
um efnið sem "Hlaupvíddin fjallar um, þ.e. ástandsárin.
HT: ÞÓ svo að þetta leikrit gerist fyrir tæpum 40 árum, þá
finnst mér það eiga alveg ótrúlega hliðstæðu í nútímanum,
því þetta fjallar um utangarðsmenn i þjóðfélaginu, þ.e.a.s.
þessar ástandsstelpur, og utangarðsmenn eru alltaf fyrir
hendi í hverju þjóðfélagi. Það er nefnilega oft hægt að
skoða nútímann betur með þvi að athuga fortíðina, heldur en
að athuga málin eins og þau eru hér og nú.
Ég stíla uppsetningu mína á þessu verki mikið upp á að draga
fram lífshætti utangarðsmanna, og ég geri það af töluverðri
reynslu, því sjálfur er ég einn af þessum utangarðsmönnum
og raunar kýs ég ekkert fremur.
Blsn: Hefuröu einhvern tima áður unnið með svona skólaleikfélagi?
HT: Nei, aldrei með skólaleikfélagi, en hins vegar hef ég unnið
ákaflega mikið með áhugamönnum og byrjendum eins og L.M.A.
samanstendur af, svo þaö er ekkert nýmeti fyrir mig, og
raunar held ég að það sé sá besti skóli sem leikstjóri getur
fengið, að drífa upp sýningu með svona fólki sem kann ekki
neitt í greininni. Ég tala nú ekki um að drífa hana upp á
3 vikum eins og við höfum gert hérna núna, það er ákaflega
góð reynsla fyrir mig og raunar krakkana lika.
Blsn: Hvernig heldur þú að L.M.A. standi að vigi miðað við önnur
áhugamannaleikfélög?
26