Muninn - 01.03.1978, Blaðsíða 29
BRIDGE.
Bridgelíf í skólanum hefur verið frekar rólegt i vetur. ÞÓ '
hafa nokkur pör spilaö töluvert mikið og æft fyrir landsmót mennta-
skóla í bridge, sem var síðan spilað hér í skóla helgina 31/3-2/4.
Þessi pör spiluðu m.a. í Akureyrarmótinu í bridge og varð sveit
M.A. þar í 5. sæti.
í þeim tvímenningum sem spilaðir hafa verið innan skólans,
sigruðu þeir Ásgeir og Hermann í fyrra skiptið, en Óttar og Frið-
jón í þeim síðari. Aðalkeppni vetrarins er samt landsmótið, sem
eins og áður sagði, var haldið hér í byrjun apríl. Til leiks
mættu 9 sveitir, sem var heldur færra en búist var við. Þær sveitir
sem tóku þátt í mótinu voru frá eftirtöldum skólum: 2 frá M.A, 2 frá
M.L, og síðan 1 frá M.H., M.R., M.K., Flensborg og Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Spilað var í tveim riðlum og komust 2 efstu
sveitir úr hvorum riðli í úrslit. Það er skemmst frá því að segja
að 2 efstu sveitir í a-riðli urðu A-sveit M.A. með 68 stig og B-
sveit M.L. með 64 stig. 1 b-riðli varð B-sveit M.A. efst með 55
stig og A-sveit M.L. önnur með 34 stig. Þar með voru báðar M.A.
og M.L. sveitirnar komnar í úrslitakeppnina. M.A.a hafði gert
jafntefli við M.L.b í riðlakeppninni og gilti sá leikur í úrslit-
unum og sömuleiðis leikur M.A.b - M.L.a sem lauk með sigri M.A.b
15-5. í fyrri umferð úrslitanna fóru leikar þannig að M.A.a vann
M.L.a 13-7, og M.A.b vann M.L.b 17-3. í síðustu umferð spilaði svo
M.A.a við M.A.b og var það úrslitaleikur mótsins. A-sveitin þurfti
að vinna leikinn 15-5 til þess að vinna mótið. í fyrri hálfleik
gekk B-sveitinni vel og var hún 20 impum yfir í hálfleik, svo að
allt benti til þess að B-sveitin ynni mótið. í seinni hálfleik
snerist dæmið þó alveg við, og er skemmst frá því að segja að A-
sveitin burstaði andstæðingana í seinni hálfleik, vann leikinn
17-3 og þar með mótið. Lokaröðin varð því sem hér segir:
1. M.A.a. 2. M.A.b. 3. M.L.a. 4. M.L.b. Sigursveitina skipa
þeir Ásgeir Stefánsson, Hermann Tómasson, JÓn Ingi Björnsson og
Kristján Lilliendahl.
Næst á dagskrá Bridgefélagsins er tvímenningur þar sem spilaö
verður um skólameistaratitilinn, og er það von okkar að sem flestir
mæti til leiks.
Að lokum skulum við skoða eitt af þeim spilum sem innsigluðu
sigur A-sveitarinnar.
Frh. bls. 35.
29