Muninn - 01.03.1978, Blaðsíða 33
Viðtal. (frh).
Hins vecjar vann ég i 20 mánuði við að framleióa myndina.
En svo ég reyni að svara þessari spurningu, þá eru þetta eigin-
lega svo ólíkir hlutir að það er ekki hægt aðlíkjaþeim saman
en persónulega hef ég meira gaman af kvikmyndum og áhugi minn
hneigist allur í þá átt.
Blsn: Heldurðu að íslensk kvikmyndagerð eigi framtíð fyrir sér,
eins og málum er nú háttað?
HT: Hún er búin að eiga framtíð fyrir sér í mörg ár, en ég held
að ástæðurnar fyrir því að ekkert hefur enn gerst í þessum
málum séu aðallega þær, að menn eru að bíða eftir styrkjum.
Þeir þora ekki að gera neitt, því þeir eru svo hræddir við
fjárhagslega hlið þessara mála.
Ég held hins vegar að ef menn hafa áhuga á einhverju málefni,
fórni þeir öllu fyrir það, og sjálfur hef ég oft gert þetta,
t.d. þegar ég hef verið að vinna að plötuútgáfu og þvílíku.
Blsn: En eru til nógu menntaðir menn á þessu sviði hér á landi?
HT: Alltof margir, en þeir eru allir að biða eftir styrkjum,
þeir eru allir á þessu plani sem ég nefndi hér á undan og
þess vegna verður ekki neitt úr neinu á þessu sviði.
Blsn: NÚ fer að styttast í þessu hjá okkur og þá er bara eftir
þessi sígilda lokaspurning: flvert er ferðinni heitið?
HT: Ég ætla að halda áfram að skrifa leikrit sem enginn vill
sýna og halda áfram að lýsa fólkinu kringum mig í verkum
mínum. Svo þarf ég að setja upp eitt leikrit i viðbót til
að geta lifað sumarið af.
NÚ var klukkan langt gengin 7, svo við blaðasnáparnir þökk-
uðum Herði kærlega fyrir, og gengum heimleiðis upp mennta-
veginn til að neyta hinna dýrðlegu mötuneytisrétta.
Gordíon (frh).
I HH.
Aðalvígstöðvar hans höfðu verið erlendis og þar kvað hann
hafa ritað fjölda greina um þessi mál og var hann mjög mikils-
metinn í sinni stétt. Á nokkrum síðustu árunum hafði hann feng-
ist við einmitt þetta samfélag og fannst mönnum því að við þó
nokkru væri að búast. En nú var skipið sem sagt lagst að bryggju.
Daglaukur feilaði á landgöngubrúna og drukknaði.
Bjarnþór frá Grafarbakka.
33