Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 12

Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 12
Tyrkjaránið og gröf séra Jóns píslarvotts, Þótt mörg aldan þung og há hafi brotnað á Eyjunum, þá mun þó mega telja þá ölduna þyngsta, sem féll yfir þær, þegar Tyrkir fóru hér yfir dagana 16.—19. júlí 1627, og munu þau hryðjuverk, sem þeir unnu hér og áreiðanlegar heimildir eru fyrir, seint gleymast öldum og óbornum. — Þeir saurguðu og svívirtu kirkjuna hér, Landakirkju, sem stóð þá þar, sem eru kölluð Fornu-Lönd, en nafninu, Landakirkja, hefir kirkjan haldið síðan, þótt tvisvar hafi hún verið sett annars staðar á síðari árum. Þegar þeir höfðu saurgað þann helga stað, lögðu þeir eld í hana og brenndu til ösku. Var þá kirkjulaust hér í 4 ár og kirkja ekki reist aftur fyrr en 1631 í kirkjugarði þeim, sem nú er notaður. Þeir líflétu annan prestinn, sem hér var, göfugmennið séra Jón Þorsteinsson sálmaskáld, á Kirkjubæ, en tóku hinn prestinn, séra Ólaf Egilsson, höndum. Þann prest bundu þeir á höndum og fótum, og lömdu svo miskunnarlaust, að nærri lá lífláti. Þeir ætluðu með þeirri barsmið að fá hann til að afhenda þeim fé, sem þeir hugsuðu, að hann hefði undir höndum, en svo reyndist ekki. Séra Ólafur kom hingað á næsta ári eða 6. júlí 1628. Var hann sendur heim í þeim tilgangi, að afla fjár, sem nota átti sem lausnar- gjald fyrir fangana, sem teknir höfðu verið og fluttir voru til Algier. Sú söfnun gekk illa. Þó munu um 30 fanganna hafa verið leystir út, og komu þeir til landsins tíu árum síðar eða 1637. í þeim hópi var Ásta, síðari kona séra Ólafs Egilssonar. Séra Jón Þorsteinsson píslarvottur var móðurbróðir Ástu. Séra Jón var einnig langafi Jóns biskups Vídalíns. Margrét, móðir Jóns Vídalíns, var dóttir séra Þorsteins, prests í Holti undir Eyjafjöllum, sem var sonur séra Jóns píslarvotts. Séra Ólafur Egilsson gerðist hér prestur eftir að hann kom heim og dó hér árið 1639. Gröf séra Jóns píslarvotts var fyrir löngu gleymd hér, en af tilviljun einni fannst hún 20. maí 1924. Bóndi nokkur á Kirkjubæ var að pæla jarðeplagarð sinn, en garður þessi var þar, sem bænhúsið átti að hafa staðið. Rekan rakst á stein í moldinni, og af því að hann hafði oft áður hitt á stein þennan, er hann pældi garðinn, þá ákvað hann nú að taka steininn upp. Hann gerði svo, en sá þá, að letur var á steininum. Steinn-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.