Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 37

Kirkjuritið - 01.04.1955, Page 37
SAMTÍNINGUR 179 krossinn og krossa sig. Ég sá mörg börn fara til kirkju með foreldrum sínum. Þegar ég fór í hina stórfenglegu Andrevsky-dómkirkju í Kief kl. 6.30 að kvöldi á föstudegi, var hún troöfull. En hin opinberu blöð eru þegar farin að láta í ljós ótta við þessa trúarvakningu, því jafnvel meðlimir æskulýðsfylkingar kommúnista — framtíðarleiðtogar flokksins — eru farnir að kvænast í kirkju og láta skíra börn sín. Þess vegna lýsa nú blöðin á hverjum degi því, hve trúarbrögð séu ill, og halda því fram, að þau séu leifar hins kapítalistiska arðráns og leiði til drykkjuskapar og minnkandi iðnaðarframleiðslu — furðuleg blanda af rökum. Þessi herferð er farin með fortölum. Ríkisvaldið hefur ekki bannað trúarbrögðin eins og áður. Það gæti lokað kirkjunum, en lætur þær þó standa opnar og dafna. Og jafnframt því, sem blöðin heimta meiri áróður fyrir guð- leysi, halda þau því þó fram, að ekki megi „móðga“ tilfinn- ingar hinna trúuðu. Maður getur varla ímyndað sér, að slíkt hefði getað skeð á meðan Stalin var og hét.“ ★ Magnús Jónsson alþingismaður frá Mel skrifar Víðsjá í sein- asta hefti af tímaritinu „Stefni“ og segir: „Þjóðin hefur nú mikla þörf fyrir sterka og áhrifamikla kirkju og kennimenn, sem ekki eru feimnir eða hika í barátt- Unni gegn hvers konar siðleysi og ósóma. Ég ætla mér ekki hér að vega eða meta hæfni íslenzku þjóðkirkjunnar í þessari baráttu, en mér virðist þó, að hún mætti að skaðlausu vera ögn einbeittari í kenningum sínum og tregari til sáttfýsi og umburðarlyndis. Kirkjan hefur mörgum mikilvægum mönnum á að skipa, en það mun mál margra, að hún mætti gera til sumra klerka sinna meiri kröfur um fyrirmyndar líferni og áhuga í kristilegu starfi en nú er gert.“ ★ Nú á fljótlega að skipta um fulltrúa kirkjunnar í stjórn brezka útvarpsins. í sambandi við það eru uppi raddir um, uð þörf væri á að breyta nokkuð til um „boðun orðsins“ í út- varpinu, haga flutningnum frekar en verið hefir í þá átt að uá til þeirra, sem tómlátir eru um trúmál eða jafnvel telja

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.