Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 13

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 13
C N PISTL4R v _______y „En jafnvel í toitíð sveif hugur eins hátt..." Ráðstjómarmáninn er nýjasta afrek vísindanna, sem vakið hefir athygli og aðdáun um allan heim. Nú virðist senn kom- ið að geimferðum. í byrjun þessarar aldar sátu íslenzk börn i kjöltu ömmu sinnar við hlóðirnar, og hlustuðu hugfangin á ævintýri. Sáu undrasýnir í handarkrika hennar eins og kallað var. Nú lifum vér það, sem engum datt þá í hug að taka trú- anlegt: Sjáum gegnum holt og hæðir, heyrum mál manna í öðr- um heimsálfum, fljúgum hvert á land, sem vera vill, sópum heyinu í hlöður álíka fyrirhafnarlítið og þegar Sæunn kerling 1 Odda rak hrífuskaftið í sátuna og sagði: „Heim í garð til Sæmundar.“ Og senn skoðum vér kannske hallirnar „austan við sól og sunnan við mána.“ Retta eru stórkostlegar og gleðilegar tækniframfarir, hvað sem líður öllum uggnum um, að menn misnoti þessi yfirráð Sln yfir náttúruöflunum, snúi þeim upp í svartagaldur, fram- leiði vetnisprengjur, sem leggi mestan hluta heimsins í rústir °g eyði þar öllu lífi. Sjálfsagt er að treysta því, að slíkt sjálfs- morð hendi ekki mannkynið. Undarlegt er, þegar á því bryddir að sumir telji vísindaaf- afrekin sönnun fyrir kenningum efnishyggjunnar og dægurtil- veru mannanna. Hér er samt um eingöngu andleg afrek að ræða. Steinar hvorki tala né skapa nývirki nema í óeiginlegri merkingu. En vér sjáum daglega dæmi þess, hve hugvitið er snjallt og kraftur þessi mikill, og hvað mennirnir komast langt sakir sinna andlegu hæfileika, ef þeir beita því, sem þeir eiga til. Það er lýðum Ijóst, að eftir síðari heimsstyrjöldina hafa ótal

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.