Kirkjuritið - 01.11.1957, Side 40
422
KIKKJUBITIÐ
mann Jónasson, er þakkaði störf ráðsins á liðnum árum, og Vilhjálmur Þór
fv. kirkjuráðsmaður.
Vegna afmælisins tók Gísli Sveinsson, fv. sendiherra, saman yfirlit um
störf ráðsins á síðastliðnum aldarfjórðungi. Fer sá skýrsla hér á eftir.
í Kirkjuxáði eiga nú sæti:
Dr. Asmundur Guðmundsson, biskup, Gísli Sveinsson, fv. sendiherra,
Gizur Bergsteinsson, hæstaréttardómari, séra Jón Þorvarðsson, prestur,
Reykjavík, og séra Þorgrímur Sigurðsson, prestur, Staðastað.
Ritari ráðsins er séra Sveinn Víkingur.
* * *
Kirkjuráð hinnar íslenzkn þjóðkirkju
tukugru og- fimm ára
YFIRLIT
Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóðkirkju var stofnsett með lög-
um nr. 61, 6. júlí 1931.
Eftir tilskilinn undirbúning samkvæmt lögunum og útgef-
inni reglugerð var fyrsti fundur Kirkjuráðsins haldinn 11. októ-
ber 1932, og hefir ráðið þannig starfað í aldarfjórðung.
Ný lög voru samþykkt og staðfest á þessu ári nr. 43, 3. júní
1957, um Kirkjuþing og Kirkjuráð íslenzku þjóðkirkjunnar, og
hin eldri þar með úr gildi felld, en verksvið ráðsins fært að
miklu leyti undir Kirkjuþingið, eins og nánar verður getið.
Um kirkjuráðsmenn var með lögunum ákveðið, að þeir
skyldu vera 5: „biskup landsins, 2 guðfræðingar, kosnir af
sóknarprestum þjóðkirkjunnar og kennurum guðfræðideildar
háskólans, til 5 ára í senn, og 2 fulltrúar, kosnir af héraðsfund-
um til sama tíma“. Biskup skyldi vera sjálfkjörinn forseti Kirkju-
ráðsins, en það kjósa sér varaforseta, og annist þeir fundar-
stjóm.
Verkefni Kirkjuráðsins var: „Að vinna að eflingu íslenzkrar
kristni og styðja að trúar- og menningaráhrifum þjóðkirkjunn-
ar“, með ýmsum hætti. Og ráðgjafaratkvæði og tillögurétt hafði