Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 38
420
KIRKJURITIÐ
hefir Ásgeir Magnússon gefið biskupi ísands, en hann afhendir nú aftur
til ævinlegrar eignar og varðveizlu biskupsdæminu.
Asgeir Magnússon!
Kirkjuráð íslands ræður hvorki yfir nafnbótum né verðlaunasjóðum, en
það vill votta yður þakkir fyrir ódauðlegt afreksverk í þágu kirkju vorrar
og heiðra yður með því að afhenda yður að gjöf á þessum merkisdegi ljós-
prentaða útgáfu Guðbrandsbiblíu. Megi hún minna yður á skyldleika við
verk yðar og að Kirkjuráð íslands metur það mikils.
Aðalfundur Prestskvennafélags íslands.
var haldinn að ÞingvöUum 19. júlí 1957, samtímis aðalfundi Prestafélags
íslands.
Um morguninn hlýddu fundarkonur messu í Þingvallakirkju og hlustuðu
á erindi séra Sigurðar Pálssonar, Selfossi, um messu kristinnar kirkju.
Að afloknum hádegisverði var fundur settur að Hótel Valhöll. Hófst
fundurinn á því, að sunginn var sálmur og formaður las ritningarkafla og
flutti bæn. — Ritari sagði stofnsögu félagsins, og formaður skýrði frá at-
burðum hins fyrsta starfsárs. Frumdrög að lögum voru borin upp og sam-
þykkt.
Þá fór fram stjómarkosning, og var öll stjómin endurkosin í einu hljóði.
Stjómin skipti þannig með sér verkum: Formaður Anna Bjamadóttir, rit-
ari Dagný Auðuns, gjaldkeri Hanna Karlsdóttir, varaformaður María
Ágústsdóttir, meðstjómendur Áslaug Ágústsdóttir, Jónína Bjömsdóttir og
Steinunn Magnúsdóttir. — í varastjóm vora kosnar: Bryndís Þórarinsdóttir
og Ingibjörg Thorarensen. — Endurskoðendur vora kosnar Laufey Eiriks-
dóttir og Guðrún Þórarinsdóttir.
Formaður bar upp tillögu um, að Frú Guðrún Pétursdóttir yrði kjörin
heiðursfélagi, og var það einróma samþykkt.
Fundi lauk með því, að frú Áslaug Ágústsdóttir las Ritningarkafla og
flutti bæn, og var sálmur sunginn á undan og eftir.
Að afloknum kvöldverði var sameiginleg kvöldvaka fyrir presta og
prestskonur.