Kirkjuritið - 01.11.1957, Side 45
Svipmyndir frá dndlandi
íslendingur, fáfróður um öll indversk málefni, nemur fátt annað en
það, sem beinlínis liggur í augum uppi, þótt hann dvelji fáar vikur í höfuð-
borg þessa víðlenda ríkis. Langa dvöl og mikla skarpskyggrú mun þurfa
til þess að kynnast til nokkurrar hlítar þjóðlífi, sem er um svo margt Ólíkt
því, sem við þekkjum bezt. Meðal annars skapa hin ólíku trúarbrögð
óþekkt og óvænt viðhorf til margra mála, og vafalaust vanmetum við
oft ágæti þess siðalögmáls, sem kristinni trú hefir, þrátt fyrir a'llt, tekizt
að skapa hér og víðar, ekki sizt í mannúðarmálum.
Naumast mun ritað svo um mannúðarstörf á Indlandi um og eftir
1920, að M. K. Gandhi sé þar ekki getið, engu síður en þegar ritað er
um sjálfstæðisbaráttu Indverja. Áhrifavald hans var undravert, og hann
virðist ekki liafa tahð sér neitt það óviðkomandi, sem mannlegt er.
tegar ég kom til Indlands á s. 1. ári, hélt ég í fáfræði minni, að vanda-
mál hinna óhreinu stétta væri alveg úr sögunni, en svo er ekki. Gandlhi
barðist hart gegn því ranglæti, sem þetta fólk er beitt og lagði líf sitt
að veði í þeirri baráttu. Hann valdi óhreinu stéttunum nafnið „Harijans",
sem merkir, að hinir útskúfuðu séu Guðs útvöldu. Aldrei hélt hann fram
réttindum þeirra, heldur ræddi (hann skyldur hinna æðri stétta við þá,
°g er það talið einkennandi fyrir baráttuaðferð hans. Hann hélt þvi ffam,
að ef ldifað væri á réttindum manna, þá vekti það sundrung, en að menn
sameinuðust um skyldur sínar.
Hið upphaflega tilefni þess, að sumar stéttir urðu „óhreinar" í augum
Hindúa, er óljóst. Trúarbragðafræði þeirra leggur einmitt ríka áherzlu
a, að við alla skuh menn vera eins, því að hinn eini, sanni Guð birtist
jafnt í öllum mönnum. Menn gizka á, að vissar fjölskyldur liafi kynslóð
fram af kynslóð unnið óhreinleg störf og á þeim hafi skapazt fyrirhtning
°g viðbjóður. Margir andans menn (höfðu lagzt gegn stéttaskiptingunmi
1 ræðu og riti, en verulegux skriður komst ekki á málið fyrr en Gandhi
tók forustu í því.
Arið 1932 ætlaði brezka stjórnin að setja lög um sérstök kjördæmi
íyrir Harijans, sem þá myndu hafa einangrazt enn meir. Gandhi hóf
föstu og kvaðst mundu leggja við 'líf sitt, til að mótmæla lagasetning-
unni, og bar sigur af hólmi. Siðar ferðaðist hann um landið ti’l að vekja