Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 43

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 43
KIRKJURÁÐSFUNDUR 425 Áminnzt lög frá 1957 greina, hvemig kjósa skal til hins nýja Kirkjuþings, en það tilnefnir síðan fulltrúa í (hið nýja) Kirkju- ráð, sem áður var kjörið sérstaklega af tilgreindum aðilum. Skulu nú skipa Kirkjuráð 5 menn, eins og áður, biskup lands- ins og 4 menn samkvæmt kjöri Kirkjuþingsins, 2 þeirra (að m. k.) guðfræðingar, og jafnmargir varamenn, en kjörtímabil kirkju- ráðsmanna er hið sama og kirkjuþingsmanna, 6 ár. Biskup er forseti Kirkjuþings og Kirkjuráðs. Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóðkirkju hefir öll árin haft með höndum, rætt og gert ályktanir um hin margvíslegustu málefni, varðandi kristni og kirkju landsins, og önnur þeim skyld, og hafa mörg þeirra komið til framkvæmda, beinlínis eða óbein- hnis í löggjöf þjóðarinnar og þjóðfélagsathöfnum, fyrir atbeina hlutaðeigandi stjómarvalda og fleiri aðila. Þegar á fyrstu fund- um ráðsins vom tekin til meðferðar t. d. eftirtalin mál: 1. Kirkj- an og æskan. — 2. Kirkjan og líknarmálin. — 3. Útgáfa bóka °g blaða. — 4. Fjáröflun til kirkjulegrar starfsemi. — 5. Fjölgun presta í Reykjavík og prestaköll þar. — 6. Helgisiðabókin. — 7. Sálmabókarmálið. — 8. Notkun kirkna. — 9. Fermingin (aldurs- takmark). — 10. Ferðaprestar. — 11. Störf presta (skýrslur). — 12. Hvíldardagshelgin. — 13. Löggilding námsbóka í kristnum fræðum. — 14. Skálholtsstaður. Eins og sjá má af þessari skrá, hafa öll þessi mál komið til meiri eða minni framkvæmda síð- “ogá liðnum ámm, enda hafa margir lagt þar hönd á plóg- mn, með einum eða öðrum hætti, og útkoman borið þess menj- sum þessara mála lágu áfram fyrir Kirkjuráðinu um fleiri ára bil, unz viðunandi afgreiðslu hlutu á réttum stöðum. Enn- fremur og á sömu lund komu til aðgerða hjá ráðinu fjöldi annara mála, á mismunandi tímum og árum saman; má þar til nefna styrktarmál, til eflingar kristnilífi landsmanna; almennir kirkjufundir; útvarpsstarfsemi á kirkjulegum grundvelli (út- varpsguðsþjónustur m. m.); kristindómsfræðsla í skólum; frjáls kristileg starfsemi; afskipti af Hóladómkirkju; bygging þjóð- kirkjuhúss (fyrir kirkjulega starfsemi í ýmsum greinum); sam- starf við kirkjufélög íslendinga í Vesturheimi; kjör presta og embætiskjör, skipun prestakalla; ráðstöfun fjár úr prestakalla-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.