Kirkjuritið - 01.11.1957, Qupperneq 24
406
KIRKJURITIÐ
ið að Glaumbæ og byggðasafnið enn skoðað. Leiðsögumaður var nú séra
Lárus Amórsson.
Þriðji hópurinn fór yfir Héraðsvötn og út Blönduhlíð og síðan yfir í
Hegranes, og var dvalizt þar um sinn. Þá var komið til Sauðárkróks, og
tók þar séra Helgi Konráðsson, prófastur, á móti okkur. Þaðan var hald-
ið heim, en komið við í Glaumbæ á leiðinni. Leiðsögumaðux var nú Guð-
mundur Jónsson, garðyrkjumaður.
Þá fóm flokkamir í gönguferðir um nágrennið. Drengjaflokkurinn gekk
á Grísafell og telpumar upp í Vatnsskarð.
Ymsir urðu til að heimsækja Sumarbúðimar. Úr næsta nágrenni Löngu-
mýrar komu böm og unglingar á kvöldvökur og þá stundum í fylgd með
foreldmm sínum. Séra Bjartmar Kristjánsson að Mælifelli heimsótti stað-
inn og með honum nokkur börn og fullorðið fólk. Séra Helgi Konráðs-
son og Jón Bjömsson, fyrmm skólastjóri, komu og fluttu ávörp. Séra Gunn-
ar Gíslason að Glaumbæ kom tvívegis. Auna Sigurjónsdóttir, kennari úr
Hegranesi, kom að Löngumýri með hóp bama. Ta'laði hún til ungling-
anna. Séra Birgir Snæbjömsson að Æsustöðum kom tíðum að Löngumýri
og veitti mikla aðstoð með kennslu og annarri liðveizlu sinni. Á síðasta
kvöldi Sumarbúðanna komu stórir flokkar í heimsókn. Séra Ámi Sigurðs-
son efndi til ferðar hjá Æskulýðsfélagi sínu, og urðu þátttakendur um 80
alls. Þessir hópar komu til Löngumýrar, og var efnt til móts um kvöldið,
sem varð hið ánægjulegasta. Munu alls um 200 manns hafa verið saman
komið þetta kvöld, en alls munu um tvö hundmð manns hafa heimsótt
Sumarbúðimar, meðan þær störfuðu í sumar.
Hver flokkur sótti kirkju á sunnudögum. Fyrsti flokkurinn fór til Hóla,
sem fyrr getur. Annar flokkurinn fór að Víðimýri, en þar fór fram guð-
þjónusta undir stjóm séra Gunnars Gíslasonar og séra Jóns Þorvarðssonar.
Þriðji flokkurinn fór að Holtastöðum í Langadal, en þar prédikuðu séra
Birgir Snæbjömsson og séra Bragi Friðriksson, en séra Ámi Sigurðsson
þjónaði fyrir altari fyrir prédikun. Kirkjuferðir þessar vom mjög ánægjuleg-
ar og þátttaka heimafólks yfirleitt mikil.
KOSTNAÐUR.
Þátttökugjald var ákveðið 350,00 kr. fyrir hvem einstakling. Kostnaður
varð eðlilega nokkm meiri, þar sem hér var um byrjun að ræða og þvi
nauðsyn að kaupa bækur og tæki í sambandi við starfið.
NIÐURLAG.
í heild hefir vel tekizt um þessa fyrstu tilraun að Löngumýri. Fram-
koma unglinganna var öll hin bezta. Kennarar reyndust allir ágætlega i