Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 27

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 27
Bústaðir Drottins Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. Og er matmálstími var kominn, sendi hann þjón sinn til að segja þeim, er boðnir voru: Komið, því að allt er þegar tilbúið. Lúk. 14 - 17. Fyrir nokkru héldu íslenzku forsetahjónin dýrlega veizlu til heiðurs Svíakonungi og drottningu hans, og hversu margir af þeim, sem boðnir voru, skyldu hafa látið sig vanta í veizluna. Þeir hafa verið næsta fáir. í dag hefir verið boðið til hátíðar hjá oss. Boðið hefir náð til flestra eða allra, en hversu margir hafa þekkzt boðið. Sjálfsagt er það ekki verr þegið hér en í mörg- um öðrum söfnuðum landsins, en hversu mikil forréttindi hafa oss hlotnazt alveg óverðugum, að vera boðnir í Guðs hús í dag. Sænskur biskup greinir frá því í hirðisbréfi sínu, hve gagn- tekinn hann sé yfir þeirri staðreynd, að honum skuli hafa hlotnazt sú náð að vera tekinn inn í samfélag við Guð í heil- aðri skírn, og hann skuli vera meðal þess litla brots af mann- anna börnum, sem hlotnazt hafi slík vegsemd. Og í dag höfum vér fengið það boð, sem er í beinu framhaldi af ofangreindri vegsemd, boð um að koma til hátíðar í kirkjunni, húsi Drottins, boð til dýrlegs fagnaðar með Drottni, boð til heilagrar kvöld- máltíðar. Erum vér ekki glaðir? Tökum vér ekki boðinu fegins hendi? Getum vér ekki hrifizt af þeirri náð Drottins, sem oss er sýnd? Höfundur sálmsins, sem vér sungum hér í upphafi, var einmitt gagntekinn af kærleika Guðs, þegar hann kom í helgidóm Drottins: Indælan, blíðan, blessaðan, fríðan bústaðinn þinn, Drottinn minn, þrá eg, þar kýs að fá eg þrátt komið inn.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.