Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 32

Kirkjuritið - 01.11.1957, Blaðsíða 32
414 KIRKJURITIÐ í messunni í kirkjunni og vera boðinn til kvöldmáltíðarborðs- ins. Hér er því sagt við oss alla: Komið, því að allt er þegar tilbúið, komið til kvöldmáltíðar Drottins. Allt annað hverfur í skuggann, þegar vér hugsum um Guð og gjafir hans, sem hér veitast oss, og því getum vér tekið undir með sálmaskáldinu og sagt: Heimsdrottna að vitja heimboðs og sitja háborð við mitt, einskis það met eg mót því, ef get eg musteri þitt fengið að sækja. Þótt sæti eg þar neðst, sit eg þér nærri, minn Drottinn, og gleðst. í Jesú nafni. Amen. Magnús Guðmundsson, SETBERGI. Regnboginn er bros sálnanna á himni til hughreystingar hryggum sál- um á jörðinni. — Zaraþústra. * * * Þegar ég fer í gröfina, get ég sagt eins og ýmsir aðrir: „Ég hefi lokið dagsverkinu." Hitt get ég ekki sagt: „Ég hefi lokið lífi mínu.“ Ég byrja á nýju dagsverki að morgni. Gröfin er ekki blindgata. Hún er þjóðvegur, sem rökkrið lokar að baki, en morgunroðinn opnar framundan. — V. Hugo. * :jí * Henry Norris Russel prófessor við Princetonháskóla í Bandaríkjunum hélt eitt sinn sem oftar fyrirlestur um stjömufræði. Að erindinu loknu, spurði kona nokkur: „Sé jörðin okkar svona lítil, en alheimurinn svona stór, getum við þá vænzt þess, að Guð láti sig okkur mennina nokkru skipta?“ „Svarið við því, frú mín góð,“ svaraði prófessorinn,“ fer alveg eftir því, hve þér hugsið yður að Guð sé mikill." * * * í augum guðsins Takota táknar þráin eftir Guði og ilmur blómsins eitt og hið sama. — Gauguin.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.