Muninn - 01.11.2002, Síða 20
café amour
-VID RÁDHÚSTORC-
Blómstrandi hamingja!
MUNINN, SKÓLABLAÐ MA, EYRARLANDSVEGI 28, 600AKURYERI,
SIMI4IÍ2 1737, NFTFANG- MIININN@MUNINN IS
Muninn
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
Allt fyrir
námsmenn!
ÍSLANDSBANKI
Dreift ókeypis til Huqins-félaqa
Fjögra manna kvintett sigrar
Hæfileikakeppni Menntaskólans á Akureyri haldin
þeir allir strákar úr fjórða bekk
eðlisfræðibrautar. Þeir eru hinn
óviðjafnanlegi forsprakki sveit-
arinnar Gísli Jóhann sem spilar
á lítinn dótagítar, Steinar Mar
sem spilar á enn minna píanó
og er jafnframt framkvæmda-
stjóri, Jóhann sem lemur bong-
ótrommurnar, og loks Jón Arni
sem spilar á hin ýmsu hljóð-
færi, meðal annars brjóstkass-
ann á sér.
Hæfileikakeppni Mennta-
skólans á Akureyri var haldin
þann 31. október síðastliðinn
og var mál manna að hún hafi
heppnast afar vel. Keppendur
voru 12 talsins, og dómarar
voru þau Anna Ríkarðs, Hjalti
Jónsson og Þorsteinn Bach-
mann.
Atriðin voru flest bráð-
skemmtileg, en eðlilega vöktu
sum þeirra meiri athygli en
önnur. Þar ber hæst að nefna
Hörð Míó sem hneykslaði
áhorfendur með, ja, athyglis-
verðum textum, Ævar Þór sem
heillaði með sannfærandi
strumpasöng og tvíeykið Guð-
ný skemmtana-
stjóri og Soffía rit-
ari sem stigu tryllt-
an dans áhorfend-
um til mikillar
skemmtunar. Ekki
má þó gleyma
tveimur afar óút-
skýranlegum atrið-
um Helga Vilbergs
sem að vöktu
ómælda hrifningu.
Þó svo að aug-
ljóst væri að hver
einn og einasti þátttakandi
verðskuldaði að vera valinn
hæfileikaríkasti menntaskóla-
neminn, var einnig ljóst að ein-
ungis einn myndi
standa uppi sem
sigurvegari.
Leikar fóru
þannig að Hörð-
ur Míó rapp-
meistari lenti í
þriðja sæti, Guð-
ný og Soffía í
öðru sæti en
kvintettinn
Hausverkur og
handafar stóðu
uppi sem sigur-
vegarar, og eru
þ.a.l. hæfileika-
ríkustu menn skólans.
Þó svo að grúppan sé kvin-
tett á pappírnum eru meðlimir
þó aðeins fjórir talsins og eru
Úrslitakeppni í hæfileikum
verður svo haldin innan langs
tíma og þá má fastlega búast
við því að Hausverkur og
handafar haldi uppi heiðri
Menntaskólans á Akureyri.
20fid@ma.is
Stjórnmálaáhugi innan MA
Knattspyrnumót framhaldsskólanna
Stjórnmálaumræða fór vel
af stað í upphafi vetrar og
gáfu bæði HÍMA (Hægri-
menn í MA) og VÍMA
(Vinstrimenn í MA) út áróð-
urssnepla. Annars vegar var
það Sannleikur, vinstra meg-
in, og hins vegar Hægri tíð-
indi. Nokkru síðar gaf VÍMA
svo út annað tölublað Sann-
leiks sem var öllu veglegra en
það fyrra og samkvæmt ör-
uggum heimildum er ekki
langt í þriðja tölublað. f áróð-
ursritunum fjalla vinstrimenn
um allt á milli velferðarkerf-
isins og hugsanlegs stríðs
Bandaríkjamanna í Irak og
hægrimenn taka fagmannlega
á málum allt frá pólitískri
heimsku nemenda MA til
stjómmálaástandsins á Kúbu.
VÍMA stóð á dögunum fyrir
málfundi þar sem Stefán Páls-
son formaður herstöðvaand-
stæðinga talaði um yfirvof-
andi fraksstríð og hugsanleg-
ar afleiðingar þess. Auk þess
hefur VÍMA haldið fjóra
ágætlega sótta félagsfundi en
nemendur bíða enn spenntir
eftir fyrsta félagsfundi HÍMA
sem er og hefur verið á döf-
inni.
Búast má við harðvítugum
deilum þegar nær dregur að
kosningum og óvitlaust væri
að “pólitískt heimskir” nem-
endur færu að fylgjast með
umræðunni og mynda sér
skoðun því að hvert einasta
atkvæði skiptir jú máli.
20oha@ma.is
Kappleikur sá, sem nýtur
einna mestrar hylli þessa dagana
á rætur sínar að rekja til sið-
spillts og viðbjóðslegs samfé-
lags miðaldanna í Evrópu. Þessi
leikur gengur út á að tvö lið elt-
ast við leðurdruslu og reyna af
öllum mætti að sparka henni inn
fyrir marklínu andstæðinganna.
Til þess að liðinu takist að ná
þessu háleita og göfuga mark-
miði er oft gripið til þess ráðs að
ryðja andstæðingunum úr vegi á
hrottafenginn hátt. Því er kapp-
leikurinn eins og gefur að skilja
vel til þess fallinn að vekja hjá
fólki viðurstyggilegar og dýrs-
legar hvatir, svo sem ofbeldis-
dýrkun, óheilbrigðan samkeppn-
isanda og kvíða.
í Reykjavík helgina 18. - 20.
október fór fram mót í þessum
villimannslega gjörningi og
sendi Menntaskólinn á Akureyri
hvorki meira né minna en þrjú
lið á staðinn - tvö karla- og eitt
kvennalið. Keppnin fór vel fram
að sögn aðstandenda og af því
má með nokkru öryggi ráða að
dauðsföll hafi verið undir með-
allagi.
Ekkert lið Menntaskólans
komst í úrslit en öll stóðu þau
sig með prýði... þ.e.a.s. ef slíkt
orðalag getur talist viðeigandi
þegar rætt er um aðra eins sið-
spillta fomeskju og knattspyrna
er.
20oha@ma.is
Kratylos kominn út
Ljóðakvöld og tónlistarvíðburðir fylgdu í kjölfarið
Síðastliðinn mánudag kom fyrsta tölu-
blað annars árgangs Kratylosar út. Blaðið
vakti mikla athygli í fyrra vegna þess að
enginn ábyrgðarmaður var nefndur, en það
varðar brot á almennum hegningarlögum.
Að þessu sinni stenst blaðið íslensk lög og
nöfn ábyrgðarmanna koma fram, en sem
fyrr láta þeir sig útlitið litlu varða. Einfalt
og stílhreint umbrot soldánsins Helga Vil-
bergs nýtur sín að fullu í þessu annars lát-
lausa blaði. Fjölbreytnin er augljólega í
fyrirrúmi þar sem efni blaðsins kemur úr
öllum áttum, allt frá hápólitík, sýru og síð-
ast en ekki síst, ljóðafans. Einnig má geta
þess að þeir félagar, Elmar Geir Unn-
steinsson og Gunnar Már Gunnarsson,
héldu gríðarmikið ljóðakvöld í tengslum
við ljóðakeppni sína og óhætt að segja að
sá viðburður hafi tekist afburðavel. Þar
léku Hundur í óskilum á alls oddi og
Bólbræður, sem gerðu það gott á árshátíð-
inni, létu ekki sitt eftir liggja.
20sgs@ma.is
blómOn/ í/bœyuÁAn/