Kirkjuritið - 01.04.1968, Blaðsíða 146
Séra SigurSur Kristjánsson,
Prestafélag
Vestfjarða
Um leið og ég færi Prestafélagi Islands heillaóskir í til«'l1,1
50 ára afmælis þess vil ég að nokkru færa í letur, það sei'1
gerzt liefir í Prestafélagi Vestfjarða, þau ár, seni liðin erll‘
síðan það leit dagsins ljós.
Aðalhvatamaður að stofnun P. V. var sr. Sigurgeir Signrð®"
sou, síðar biskup, ásamt sr. Böðvari Bjarnasyni á Hrafnseyr1’
en það var stofnað 1. sept. 1928. Form. félagsstj. var sr. Sigur"
geir kosinn og æ síðan á meðan hann dvaldi á félagssvæðin11,
Kostað var kapps um að lialda aðalf. fél. sem víðast á félag8'
svæðinu og liefur það haldist síðan. Upphaflega var félag8'
svæðið hundið við allan Vestfjarðakjálkann eða 4 prófasts'
dæmi, en þann rúma aldarfjórðung, sem ég liefi dvalið á þess11
svæði sem þjónandi prestur hefur það verið bundið við hinaI
þrjár vestustu sýslurnar eða prófastsdæmin. Hafa fundir h'
lagsins verið lialdnir á víxl á prestssetrunum oftast nær. I'1!
vegis liefir verið sameiginlegur fundur með Hallgrímsdeihh
Bjarkarlundi árið 1952 og nú á s. 1. ári, enda er nú svo kom1
prestafæö á félagssvæðinu að ógerningur er að halda fund nie
félagsmönnum einum, nema fullvíst sé fyrirfram, að allir gel1
mætt, en á því liefir ávalt verið misbrestur sem eðlilegt er’
enda þótt fundir hafi verið vel sóttir að öllum jafnaði inið;1
við aðstæður og atvik. 1 ráði er því að lialda sameiginlena
aðalfundi með Hallgrímsdeild urn sinn af þessum ástæðum-
Þegar ég kom liingað til Isafjarðar voru prestar í ölhn’1
prestaköllum á félagssvæðinu, sem voru 17 talsins. Nú eru þaI
aðeins 8 prestar og litlar líkur á, að þeim fjölgi á næstum11’
enda á að fækka mjög prestaköllum frá því sem nú er, san1'