Kirkjuritið - 01.04.1968, Blaðsíða 178
INNLENDAR FRÉTTIj
Aðalfundur Hins íslenzka Biblíufélags
var haldinn í Dómkirkjunni 28. apríl s. 1. þar sem séra Óskar J. Þ°r'
láksson prédikaði.
Forseti félagsins, hiskup íslands stýrði fundi. Úthýtt var meðal fundar-
manna smekklega útgefinni ársskýrslu með upplýsingum um félagsstarfið-
Framkvæmdarstjórinn, Hermann Þorsteinsson flutti og glöggt erindi t1"1
reksturinn. Hefur félaginu reynst mikið liagræði í Guðbrandsstofu í Hall'
grímskirkju. Málverk af Guðbrandi biskupi eftir Halldór Pétursson hefur
nú verið hengt þar upp til prýðis.
Bókaútgáfa var engin á s. 1. ári og eru flestar Bihliur uppgengnar, en
ráðstafanir hafa verið gerðar til að hæta úr hrýnustu þörfunum.
Sjö manna nefnd vinnur nú að þýðingu N. T. og má vænta kymling"1'
útgáfu af Lúkasarguðspjalli frá hennar hendi í haust.
Félaginu hlotnaðist stærri gjöf á árinu en nokkru sinni hefur fallið þvl
í skaut. En stjórnin taldi sér ekki fært að segja náið frá henni fyrr en
síðar.
Tekjur félagsins á s. 1. ári voru .... kr. 1.980.737,15
Gjöld .................................... kr. 542.417,05
Hreinar tekjur ........................... kr. 1.438.320,10
Frainlög sókna og söfnunarfé á Biblíudegi nam á árinu kr. 118.393,35-
36 gerðust ævifélagar á árinu.
Strandarkirkju áskolnuðust á árinu 1966 tæpar 607.000,00 kr. auk uu'
118.000,00 kr. vaxta. Inneign í árslok var 8.592.763 kr.
Séra Óskur Finnbogason var kosinn sóknarprestur í Bíldudalspresta-
kalli með lögmælri kosningu.
Séru Halldór Gunnarsson lilaul einnig lögmæta kosningu í Holtspresta-
kalli, Rang.
í tilefni af hálfraraldar afmæli P. I. koma þrjú hefti Kirkjuritsins nú 1,1
í einu lagi og nokkuð aukin. Verður því væntanlega vel tekið.
KIRKJURITIÐ 34. árg. — 4—6 hefti — apríl—júní 1968
Tfmarit gefig út af Prestafélagi Islands. Kemur út 10 sinnum á iri. Verg krT200*?‘
Ritstjóri: Gunnar Árnason.
Ritnefnd: Bjarni SigurSsson, Heimir Steinsson,
Pétur Sigurgeirsson, Sigurður Kristjánsson.
Afgreiðslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Hagamel
Sími 17601.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.