Kirkjuritið - 01.04.1970, Síða 28
170
KIRKJURITIÐ
skemmtan til borganna. Reyndin verðnr lík og í liappdrætti.
Fáir lireppa vinninga, allur þorrinn situr uppi með sviknar
vonir, atvinnuleysi, sult og seyru.
Hér er ein svipmyndin sem talar skýru máli:
I Caruarú í Brasilíu liefur verið komið á fót sérstakri út-
fararstofnun fyrir fátæklinga, sem grefur þá fyrir ekkert, til
að milda þeim ögn tilhugsun þess að falla úr hor. Kistur voru
þar við hendina, klambrað saman úr umhúðakössum, klæddar
svörtum striga að utan. Að innan verðu blöstu við áletranii'
á þessa lund: THIS SIDE UP RECIFE BRAZIL. Við hliðina
á þeim voru stórir staflar af pappaöskjum með FOSFATO
TERROSO, sem talið er að flýti fyrir rotnun líkanna.
Höfundur fylgdist með verkamanni, sem flutti harn sitt til
greftrunar í fátækragrafreitnum. Hann hafði kistuna í hjól-
liestakerru, sem hann dró á eftir sér. Líkfylgdin var aðeins
þeir tveir, sem nefndir hafa verið. „Eða við þrír ef menu
kjósa það heldur.“
Þeir fylgdust þegjandi að. Lindquist kom sér ekki að þvi
að spyrja föðurinn neins. Þegar kom í kirkjugarðinn fórU
þeir fyrst um grafreit auðs- og maktarmanna. Þar blöstu við
marmaragrafhýsi og jámgrindaflúr. Sum eftirlíkingar halla
og herragarða. Síðan komu legurúm millistéttarmanna, miklu
viðhafnarminni og þó dásnotur.
Grafarstæði almúgans voru íburðarlaus og kostuðu aðeins
2500 kr.
Loks var komið að gröfum öreiganna. Nokkrar nýteknar
grafir göptu við sjónum — reiðubúnar. Prestur fylgdi ekki
með gjafagreftrun. En þarna voru nokkrir grafarar og viðar-
tínslumenn. Þeir síðartöldu liöfðu þann starfa að safna sainan
fjalarbrotum, sem upp koma, þegar grafið er á ný í leiðin eftir
hálft ár.
Það tók aðeins örskotsstund að moka ofan í gröfina. Síðan
var liorfið heim á leið. Faðirinn þurfti að skila kerrunnii
sem allra fyrst.
Þetta er fjarri því ömurlegasta myndin í bókinni. Margar
myrkari. Enginn veit með vissu hvemig bezt er að leysa hnut-
ana. Hitt er höfundur handviss um að stíflan, sem í dag
skorðar lífið í þessuin löndum, hrestur fyrr en varir, hvað
sem þá gerist.