Kirkjuritið - 01.04.1970, Síða 29
KIRKJURITIÐ
171
HvaS er að segja af kirkjunni?
Suður-Ameríka hefur um langa liríð verið einna sterkasta
Vlgt Rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Páll páfi flaug þangað
^yrir skömmu. Talaði vel, en varð því miður fremnr lítið
ágengt svo séð verði.
Mótmælendum hefur farið f jölgandi einkum upp á síðkastið.
ÞaS er ein orsök þess að Alkirkjuþingið verður haldið í
^rasilíu í sumar. Ekki verður hjá því komist að ástandið
uasi við augum fulltrúanna. En vera má að þeir liafi ekki
SVo nnkið erindi sem erfiði, en vona má það bezta.
Skipulag kaþólsku kirkjunnar og starfsaðferðir í þessum
ondum er víðast svipað og á miðöldum. Enn er kirkjan stærsti
andeigandinn, auðsæl og drottnunargjörn. Kirkjurnar hlaðnar
skrauti og biskupar klæddir pelli og purpura. Allur þorri
Prelátanna fylk ir liði með yfirstéttunum til verndar völdum
Slnum, auði og forréttindum. Þeir voru líka þrælalialdarar
áður fyrr og eru það enn í vissum skilningi. Skrúðgöngur og
'átíðir eiga að heilla og sefa fólkið og halda því við trúna.
11 fulla þjónustu kirkjunnar fá þeir einir, sem geta greitt
nana.
Þessi saga er kunn frá fleiri löndum t. d. Frakklandi og
Rússlandi. Og lyktir hennar.
Plestir prestanna sitja hjá og lialda að sér höndum í þjóð-
’nálunum. Fer líkt og Juanita kona séra Ralplis Abernathys,
eRirmanns dr. Martins Luthers Kings sagði, er Inin var
sPUrð nýlega um afstöðu hvítra presta til kynþáttabaráttunnar
Vestan Iiafs. Hún kvað mótmælendaprestana yfirleitt tómláta.
eir hefðu báðar hendur bundnar, misstu embættin, ef þeir
„;< ru að gera uppsteit og gætu þá ekki séð fjölskyldum sínum
larborða.
Ekki má gleyma undantekningunum, né láta þess með öllu
ogetið, sem vel er gert, græna gróðrinum, sem þrátt fyrir öll
ehi lieldur lífinu í kirkjunni um víða veröld.
ðTargir prestar, munkar og nunnur hafa um aldirnar lifað
saunkristnu lífi — og gera enn. Verið heilliuga trúmenn og
10 verkin tala. Borið flestum hærra blys menningarinnar,
lr,nið ósleitilega að líknarverkum. Borið bróðurliug til ríkra
fátaekra, og barizt fyrir réttlætinu, hvað sem það kostaði.