Kirkjuritið - 01.04.1970, Blaðsíða 34
KIItKJUltlTIÐ
176
aðrar lil styrjalda. Með síharðnandi baráttu eykst liættan á
því að nýjar ofbeldisstjórnir taki stjórnartaumana. Eins og
nú standa sakir virðist allt benda til þess að stórveldin auki
aðstoð sína við þær stjórnir, sem berjast fyrir því að ranglát
þjóðfélagsskipun haldist við lýði.
Vér höfum talið oss skylt sem fulltrúum kristinna safnaða
og kristniboðsfélaga í Svíþjóð, að kljást við þessi vandamál
á frjálsum vettvangi, og liöfum með aðstoð kristniboðsins og
annarra lijálparstofnana lagt vorn skerf af mörkum. En oss
er ljóst að bér er við svo mikil vandamál að stríða að þar
þurfa víðtæk þjóðfélagsöfl að koma til sögunnar. En til þess
að slík stjórnmálaleg öfl verði leyst úr læðingi þarf almenn-
ingsálitið í landinu að taka gjörtækum breytingum.
1 þeirri sannfæringu að stjórnmálaflokkamir séu jafn óróir,
já angistarfullir út af þeirri síbreikkandi gjá, sem er á milh
ríkra og fátækra í veröldinni, og í trausti þess að stjómmála-
flokkarnir skipi velferð vanþróuðu landanna á sama bekk og
vorri eigin velferð og telji liana eitt sitt mesta áhugamál, ber-
um vér fram eftirfarandi óskir í tilefni af þingkosningun-
um 1970.
Að flokkarnir lýsi ljóslega afstöðu sinni varðandi umfang,
stefnu og vöxt sænskrar ríkisaðstoðar við vanþróuðu þjóðirnar-
Að flokkarnir leggi sig fram um að gefa kjósendum sem
skýrastar upplýsingar um viðliorfin í alþjóðarmálum.
Að flokkarnir kosti meira kapps um að móta almennings-
álitið á þann veg að sænskt hjálparframlag til vanþróuðn
landanna fari vaxandi, jafnvel þótt það kunni að leiða •'!
bægfarari bagvaxtar og vehnegunar hér innanlands.
Að flokkarnir lýsi yfir að sú nýstefna að skipa bjálpar'
starfseminni í fyrirrúm, skuli ekki íþyngja lálaunafólki eða
öðrum afskiptum þegnum vorrar eigin þjóðar.“
Rétt er að bæta því við að í mörgum löndum í öllum álfum
lieyrast æ báværari raddir um að matargjafir og efnahag8'
aðstoð verði skammgóður vermir og komi að litlu haldi,
bætt sé ekki úr þjóðfélagslegu ranglæti, sem oftast er niesta
uppspretta eymdarinnar.
Þetta mun koma skýrl fram á fundi Alkirkjuráðsins, sem
lialdið verður í Brasilíu í sumar.