Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1970, Side 48

Kirkjuritið - 01.04.1970, Side 48
190 KIRKJUIUTIÐ öll þróun sé ólijákvæmileg, eða telja sjálfgefið að allt, sem gerist sé að vilja Guðs. Kirkjan má ekki dirfast að taka ákvarðanir um einstök atriði kristins boðskapar í nútíðinni, nema í stöðugri trú og iðrun og eftir vandlega könnun á ritningunum og öllum að- stæðuin. En þegar hún þykist þess fær dynja á lienni spurn- ingar. Enginn lialdi að þær, sem liér fara á eftir séu tæmandi eða jafnvel sérstaklega einkennandi. Þær eru aðeins dæmi um þær spurningar, sem knýja á. Hvernig á til dæmis að snúast við boðorðinu um frjósemina og uppfyllingu jarðarinnar (Gen. 1,28) þegar offjölgun mann- kynsins er yfirvofandi? Hvernig á fólk sem líður bungursneyð eða stjórnvöld með langdrægar efnaliagsáætlanir á prjónunum að skilja orð Jesú um akursins liljugrös og fugla biminsins og þau ummæli að vera ekki ábyggjufullir um morgundaginn ? Hvað þýðir að hamra á breinlífi fyrir hjónaband þegar pillan gerir kynmök almennt hættulaus að því er þunganir snertir? Hvernig eigum vér að hlýðnast boðorðinu um að eigi skuli mann deyða, þegar unnt er að taka sláandi hjarta úr „dauð- um manni frá læknisfræðilegu sjónarmiði“ og flytja það i annan deyjandi mann svo að hann geti lifað? Hvaða afstöðu liyggst kirkjan ætla að taka til fóstureyðinga, þegar „eyðingar- pillan“ liefur verið fullkomnuð og náð almennri útbreiðslu? Hvernig á að skilja orðin í Róm. 13,1: „Sérhver maður sé yfir* boðnum valdstéttum hlýðinn,“ þegar sú krafa verður æ ba- værari að útskurður mála sé fabnn lilutlausum og sérbæfðum dyggðamönnum? Hvemig á kirkjan að snúast við „boðinu mikla“ um að kristna allar þjóðir, þegar hún gerir sér tæplega grein fyrir því, að kristnum mönnum fækkar hlutfallslega með liverjum degi, einfaldlega vegna þess hve fæðingartalan er mismunandi liá í heimsblutunum? Til livaða ráða á kirkjan að grípa til að styðja að því í þeirri kynþáttabaráttu, sem nú geysar um víða veröld, að eitthvað miði að því, sem lýst er í Gal. 3,28: „Hér er ekki Gyðingur né grískur, bér er ekki þræll né frjáls maður?“ Hvað liefur það í för með sér að flytja lieilshugar Guðsboð meðal þjóða, sem eru gegnsýrðar af menningu annarra trúar- bragða en kristindómsins? Hlýtur kirkjan ekki að vera reiðu- búin að snúa ókristnum hátíðum og helgisiðum upp í kristna

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.