Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 35

Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 35
KIRKJUIIITIÐ 225 Guð í allieimsgeimi, gefðu að birti aftur. Vertu í veikum styrkur, vilji, þrek og kraftur. Blinduð börn þín leiddu björtum móti degi. Án þín ratar enginn auðnu sinnar vegi. Faðir lífs og ljósa, lát oss veginn þekkja. Ótal undramyndir okkur vilja blekkja. Hyggjulausum heimi hættur verða margar. Án þín finnur enginn ömggt ráð til bjargar. Þú, sem stjörnum stýrir, stjórnar Iinattabrautum. Bægðu frá oss böli, bjarga oss frá þrautum. Ljós á lífsins vegi lögmál þitt er: Friður. daggir þinnar dýrðar drjúpi til vor niður.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.