Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 26
216 KIRKJURITIÐ
eftir því, sem bezt lientar á hverjum tíma í baráttu fyrir alræfti
öreiganna.
Lenin mælti á sínum tíma í ávarpi á þingi Æskulýð’ssambands
kommúnista:
„Vér segjum: Siðgæðið er ]iað, sem stuðlar að upprætingu
hins gamla skipulags arðránsins og sameinar alla erfiðismenn
öreigunum, til uppbyggingar kommúnistísku þjóðfélagi . . .
Vér trúum ekki á neitt eilíft siðgæði.“
5. Kristnin boðar að sakir ófullkomleika mannanna verði
æðri máttur að koma til, ef friða á heiminn og koma á full-
komnu þjóðfélagi.
Kommúnistar telja sér í lófa lagið að skapa með tímanum
stéttlaust þjóðfélag, þar sem allir uni glaðir og ánægðir.
Eins og sést er stiklað á stóru og aðeins dregnir örfáir böfuð-
(lrættir.
Heimsskoðun marxista er sannarlega enn frekar en kristn-
innar reist á trú en ekki skoðun.
Þess verður og sérstaklega að geta og gæta að allir eru menn-
irnir menn, livar og á livaða tíma sem þeir lifa. Kenningar liafa
sitt gildi og sín áhrif. En játningar og líferni fara ekki alltaf
saman. Trúlaus kommúnisti getur verið kristnari í bjarta sínu
og í samskiptum við aðra menn lieldur en kreddufastur „krist-
inn“ maður. Kirkjusagan er ófögur á köfbim. Þess verður ekki
dulizt. Enda er bún eins og livert annað félag þar sem misjafn
sauður er í mörgu fé.
Ég trúi á sigur Krists.
En þetta er hvatning til umhugsunar. Því að þessi mál eru á
dagskrá beimsins.
„Nœgilegt gjald“
Steinunn Guðmundsdóttir (f. 4. nóv. 1869) er ekkja Jóns Lýðs-
sonar á Skriðnesenni í Strandasýslu (d. 11. ágiist 1969).
Bæði voru þau bjón rómuð fyrir mannkosti og myndarskap
og rausn þeirra alkunn.
Steinunn er fædd og uppalin á Dröngum á Ströndum. Hún
nam Ijósmóðurfræði í Reykjavík liðlega tvítug. Gengdi um skeið
Ijósmóðurstörfum í Árnesslireppi við liin erfiðustu skilytði-
Varð að fara fjallvegi fótgangandi á stundum og á árabátum
ef sjóvegurinn var valinn. Og ekki kosið um veður né færi.