Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 4

Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 4
194 klÍlKJURITIÐ hafði sagt í útvarpspredikun, að kristindómurinn væri nógu auðugur og Kristur nógu stórkostlegur, þótt ekki væri haldið áfram að eigna honum sannindi, sem til hefðu verið í öðrum trúkerfum löngu fyrir daga hans. Mér þótti leitt að liafa sært þessa góðu konu, en vér verðum að leysa liann úr þeirri sjálfheldu, sem vér höfum sett Iiann í með síendurteknum, fráleitum fullyrðingum um, að hann einn allra trúarbragða flytji orð Guðs og guðlegan sannleika. Auðvitað halda fæstir túlkendur kristindómsins því lengur fram, að ekki-kristnir menn liljóti eilífa fyrirdæmingu eða útslokknun og eilífan dauða meðan kristnir menn gangi inn i eilífan fögnuð herra síns. Þessi hugmynd gat nægt þeim, er ekkert þekktu af trúarheiminum annað en kristindóminn- Fæstir menn láta segja sér þetta lengur, jafnvel þótt því til stuðnings sé vitað í sjálfa Ritninguna. Heilagur andi hefur einnig verið gefinn heiðingjum, eins og Pétur og samlierjar hans komust að raun um í SesareU forðum. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr, teygja sig ýmsar rætur trúarhugmynda vorra og trúarsiða aftur í rönun- ustu Iieiðni, og það er ekki samboðið kirkju mannssonarins, sem var myrtur vegna sannleikshollustunnar, að loka augum fyrir þessu eða þegja um það í kristinni predikun. Trúarbragðaheiminum má líkja við mikla dómkirkju nieð mörgum ölturum. I liöfuðkór er fluttur kristinn boðskapur- Við ölturin hin eru túlkaðar hugmyndir annarra trúarbragða? en bergmál frá þeim hefur horizt inn í kórinn, þar sem kristn- ir menn þjóna við háaltarið. Þar ert þú með þína guðsdýrkum En lilustaðu á óminn frá hinum ölturunum líka, og ef l)l1 hlustar opnuin eyrum mun þér fara h'kt og Pétri forðum °r samlierjum lians, sem urðu þess vísari í Sesareu, að heilag111 andi liafði ekki verið gefinn kristnum mönnum einum. Það er skiljanlegt, að þeim, sem alizt hafa upp við þá trll> að kristindóm.urinn einn flytji sannleiksorðið, geti sárnað þeí>' ar öðru er Iialdið fram. En sagði ekki meistari kristninnar, að sannleikurinn ætti að gjöra oss frjálsa. Og lýsti hann ekk1 yfir því á einu slórkostlegasla augnabliki ævi sinnar, að han11 væri konungur sannleikans? Hvað á þá að segja? Yfir hverju að þegja?

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.