Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 11

Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 11
KIRKJURITIÐ 201 heilbrigð 11 einkalífi, heimili og Iieilsu, jafnvel lífinu sjálfu, sakir ofurkapps. Þess er heldur ekki að dyljast, að þeir menn eru til, sem virða engin vé, ef fjárvon er annars vegar. Þeirra sýkta liugsun er m. a. á hak við það vandamál, sem nú er í vaxandi mæli að aflijúpa alvöm sína: Neyzlu eiturlyfja. Ekkert góðæri kemur að lialdi, ef andlegu verðmætin eru vanmetin, gleymd eða til þurrðar gengin. Engri j)jóð eða ein- staklingi getur famast vel, ef afstaðan til verðmæta er röng, afvegaleidd og sjúk. Komum saman á bænadegi og færum GuSi þakkir fyrir gengi °g gœfu, biSjum hann um styrk og hjálp í öllum ytri erfiS- leikum. BiSjum hann umfram allt, aS liann láti sitt heilaga orS og anda leiSa landsins börn, svo aS allt gengi megi aS gœfu verSa og öll barátta aS blessun. Sendi liér með hvítasunnuboðskap Alkirkjuráðsins. Bæn Megi styrkur Guð's efla oss. Megi kraftur Guðs varðveita oss. Megi vizka Guðs upplýsa oss. Megi hönd Guðs vernda oss. Megi vegur Guðs liggja opinn fyrir oss. Megi skjöldur Guðs hlífa oss. Megi englar Guðs varðveita oss fyrir vélabrögðum hins illa og tálsnörum veraldarinnar. Kristur sé með oss. Kristur gangi fyrir oss. Kristur búi í oss. Kristur sé yfir oss. Lát oss, ó Drottinn, njóta frelsunar þinnar, þennan dag og um aldir. Skt, Palrick,

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.