Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 10

Kirkjuritið - 01.05.1970, Blaðsíða 10
Sigurbjöm Einarsson, biskup: Bréf um bænadaginn Reykjavík, 20. apríl 1970. Ég leyfi mér liér með að minna á hinn almenna bænadag, 5. sd. e. páska, sem er 3. maí að þessu sinni. Ég vona og mælist til þess, að hann verði almennt lialdinn sem bœnadagur í söfn- uðum landsins. Ég bið presta og sóknarnefndir að gera sitt til þess, að svo rnegi verða. Víðast livar við sjávarsíðuna liafa aflabrögð verið með mesta móti í vetur. Þar er þakkarefni, sem vert er að minnast. Hins vegar liefur víða verið liart til sveita, svo að áhyggjum veldur og erfiðleikum, enda fór óliagstætt sumar á undan og raunar fleiri misseri óblíð. Eigi að síður horfir vel um efnalega liagi þjóðarinnar, þegar svo árar til sjávar sem nú. Vér skyldum því sameiginlega færa Guði þakkir fyrir gæftir og mikinn sjávarafla og jafnframt sameinast í bæn fyrir góðum vorbata til landsins. 1 þessari sameiginlegu þakkargjörð og fyrirbæn minna landsmenn sjálfa sig á það, að ein og söm er gipta þjóðarinnar, og einnig á hitt, að allir stöndum vér lilið við lilið í lífsbarátt- unni. Mætti sú bænarhugsun stuðla að eindrægni með þjóð- inni, samstöðu stétta og samábyrgð, og einnig vekja til nieiri umhugsunar um liagi þeirra, nær eða fjær, sem eiga við skort að búa. Mikil efnisleg verðmæti hafa verið dregin í þjóðarbiiið. Það er þakkarefni. Mætti afli ])jóðarinnar jafnan koma td réttlátra skipta með börnum landsins. Oft hefur þess gætt, sérstaklega á velgengnisárnm, að menn hafa ekki sézt fyrir í kappi sínu við að afla fjár og tryggja afkomu sína, eins og kallað er. Hafa menn þá einatt fórnað

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.