Kirkjuritið - 01.04.1975, Qupperneq 8
... en með Jesú er upprisa hinna dauðu hafin
„Einhverjir hafa rænt gröfina!“ H/laría Magdalena var hugstola. Hún var komin til a8 líta
eftir gröf Jesú. Nú var öllu lokiS. Hann var dáinn, en gröf hans skyldi þó hirða, hvað sem
öSru leið. Hún var hiS eina, sem þeim var eftir skilið. En hver hafði opnaS gröfina? Hver
hafði tekið líkamann? Áttu þau þá ekki einu sinni að fá að varðveita gröf hans? Hún var
hrelld, — næstum í dofa af þeirri sorg, sem atburðir síðustu daga höfðu steypt yfir hana
og vinahópinn. Hún snýr sér við og verður vör við mann í garðinum, sem gröfin var í.
Það hlýtur að vera grasgarðsvörðurinn. Ef til vill vissi hann eitthvað? „Tókst þú hann
burtu? Seg mér, hvar þú hefur lagt hann!“ Maðurinn brosir róandi við henni. Henni finnst
sem bregði fyrir gleðibliki í augum hans. Þessi augu .... ? „María!“ — Henni verður bilt
við. Þekkir hann hana? Og röddin þessi En það getur með engu móti verið ...!?!
„Meistari!!" Hún hrópar það skjálfandi af streitunni milli óttans við vonbrigðin í sorginni
og óslökkvandi vonarneistans og örvita gleði. „Það ert þú, Jesús!“ Hún hleypur til og ætlar
að faðma hann, en hann stöðvar hana og biður hana fara til bræðranna og segja þeim, að
brátt muni hann fara upp til hans, sem bæði sé Guð og faðir þeirra og hans sjálfs.
María var sannfærö. Og boS þau, er
hún flutti bræðrum Jesú í gleði sinni,
hafa brátt verið borin manni eftir mann
í tvær þúsundir ára. Og menn hafa
sannfærzt — eins og María. Þessa
dagana flytja blöð, útvarp og sjón-
varp, tímarit og umburðarbréf — og
tugþúsundir ræðumanna tíðindin
lengra: JESÚS LIFIR! Hann var dáinn,
en að liðnum þrem dögum aðeins reis
hann aftur upp í líkamanum, og hefur
síðan verið óslitið að verki allt til
þessa.
— Jesús er ekki hinn eini af
þeim, sem dánir eru, sem snúið
hefur aftur til lífsins, segir Alex
Johnson biskup í viðtali við Páska-
blaðsmenn. Við vitum auk heldur
nöfn nokkurra annarra. Þar má t.d.
telja Lasarus. Það er augljóst, að
hann var dáinn, en Jesús lífgaði
hann að nýju. Eins var um dóttur
Jairusar og son ekkjunnar af Nain.
En engu að síður er regin munur á
öllu þessu fólki og Jesú. Það er allt
dáið aftur. Það fékk aðeins frest. Það
er eina fólkið, sem dáið hefur tvisvar.
Upprisa Jesú er aftur á móti allt
annars eðlis. Hann hefur gengið inn í
tilveru, sem er með ailt öðru móti.
Hann er að vísu hinn sami. Þeir gátu
þreifað á honum, og hann gat etið og
drukkið. Þar með er ekki fullyrt, að
Jesús þurfi enn í dag að eta, en hann
gerði það í það sinn til þess að sýna
að hann væri raunverulegur.
— Á hverju er trúin á upprisu Jesú
sem sögulegan atburð eiginlega
byggð? Eru heimildirnar traustar?
Hin tóma gröf er söguleg staðreynd
— Um upprisuna eru til góðar
heimildir. Hin elzta og traustasta
heimild var rituð snemma á fimmta
áratugnum eftir fæðing Jesú, —
sem sagt í hæsta lagi tuttugu og
6