Kirkjuritið - 01.04.1975, Side 15

Kirkjuritið - 01.04.1975, Side 15
aS ganga um luktar dyr. En þetta er ekki skoðun postulanna. Þvert á móti. þeir hugsa sér það fremur, — svo að notuð sé nýtízkuleg mynd, — sem flug- vél, sem kljúfi skýin án þess nokkurt 9at komi á þau. Flugvélin er m. ö. o. ár svo miklu þéttara efni. Andinn er hið þyngsta og þéttasta efni, sem til er Þannig getum vér hugsað oss, að líkami Jesú hafi allt annars konar Þéttleika og hörku en nokkurt Þekkt efni. Þess vegna gat hann gengið beint í gegnum hurðir. Það var enginn galdur. Andinn er hið Þyngsta og þéttasta, sem til er. Þeim, sem hefur reynt upprisu Þoldsins, hlýtur því að virðast þessi Þlvera hér eins konar draugatil- vera, — en ekki hið gagnstæða, eins og vér hneigjumst til að halda. Til þess að lýsa þessu enn greinilegar °9 sýna, að þetta er langt frá því að vera nútímaskilningur fyrir kristinni kirkju, segir Johnson biskup helgi- sögu frá miðöldum, sem birt er á öðrum stað í blaðinu. — Maðurinn breytist mjög á ævi sinni. Hver verður vakinn upp, — verð- Ur það sá ungi eða sá gamli Alex Johnson? — Hér er bezt að hugsa af skyn- semi. Eigi ég t.d. eftir að lifa í sjö ér enn, þá segja vísindamenn, að Það efni, sem í dag myndar líkama hiinn, verði með öllu horfið og ann- að komið í staðinn. Þær frumeindir og frumur, sem eru í líkama mínum í dag, verða þá, vegna hinna eðli- !egu efnaskipta, allt annars staðar: í sjónum, í jörðu, — e.t.v. með fæðu í allt öðrum manni, sem fæðst hef- ur á þessum árum?! Því segir Páll einnig: „Hold og blóð getur eigi erft Guðs ríki.“ Þetta er líkast því að hlýða á guð- fræðilegan og líffræðilegan fyrirlestur, og við verðum að játa, að sá góði biskup kemur okkur enn á óvart. En hann hefur vissulega á réttu að standa í því, að það efni, sem er í líkömum vorum, er unnt að fá keypt fyrir fá- einar krónur í næsta apóteki. Hefur Páll haft það í huga? ,,Ekki er allt hold sama hold. Heldur er mannsins eitt og hold kvikfjárins annað, eitt er hold fuglanna og annað fiskanna. Og til eru himneskir líkamir og jarðneskir líkamir.“ Það er með öðrum orðum Ijóst, heldur Johnson áfram, að sá líkami, sem ég hef nú, er úr efnum, sem ekki voru í mér fyrir tuttugu árum, en — kona mín þekkir mig þó. Hún þekkir mig á röddinni, á hreyfingunum, á háttum mínum . .. Sem sagt: Líkaminn er eitthvað ann- að en þau efni, sem hann er úr. Það er eitthvað, sem veldur því, að vér öðlumst hvert og eitt líkama, sem ein- kennir einstakling. Þetta er það, sem rísa skal upp, — sem sé sá varanlegi líkami, sem veldur því, að ég er ég og enginn annar. Því er einnig tekið svo til orða, að hann kalli oss með nafni. — Hvað er það eiginlega, sem ein- kennir hvern einstakling? — Það er í rauninni fyrst, þegar staðið er hjá líki þess, sem var kær, að þetta skilsf. Þegar horft er 13

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.