Kirkjuritið - 01.04.1975, Side 33

Kirkjuritið - 01.04.1975, Side 33
að meS ótvíræðum hætti opinberast Guð í einum saman Jesú Kristi, — og nú undirstrikað, að beinan vitnisburð um þessa opinberun er hvergi að finna nema í Biblíunni. Ég hef og íramar í Þessu máli lagt áherzlu á það, að sú viðburðarás, sem þessu eíni tengist og Postularnir vitna um, væri sannsögu- leQt efni. Loks vakti ég athygli á því, að opinberunin er tvibent: Annars Vegar rýfur hinn huldi og óskiljanlegi Guð þögnina og gengur fram á foldu. 'Jafnframt heldur hann áfram að vera úskiljanlegur leyndardómur, — þrátt tyrir opinberun sína. ^r þá unnt að segja, að opinberun Guðs í Jesú Kristi „liggi fyrir“ í Ritn- lngunni, þannig að þar geti maðurinn Vegið hana og metið, svipað og hug- takaröð eða gjafabréf upp á jarðar- Part? Fjarri fer því! Sá sem nálgast Biblí- Une og nefur að leiðarljósi „hlutlaust" mat fræðimannsins á hugmyndum eða góðbóndans á landsskika, mun aldrei tinna opinberun Guðs á blöðum henn- ar- Hann kann að finna athyglisvert trúarbragðasögulegt efni. Hann getur e- t. v. samið langhunda um menningu ^usturlandaþjóða að fornu. Má og Vera, að hann hitti fyrir eitthvað það, Sem fornleifa'ræðingum þykir matur í. ^thygiisverg r hlutir, fróðlegir og skemmtilegir kunna að liggja honum ' augum uppi. En svo lengi sem hann nálgast Bibl- IUna með ofangreindu hugarfari mun óann aldrei verða neins þess áskynja, er gengur honum til hjarta. Þegar hann ^efur lokið lestri hverju sinni, stendur hann á fætur og snýr sér að öðrum efnum. ,,Lífsskoðun“ hans er ósnort- in af því, sem hann las, ,,trú“ hans sömuleiðis, ef hann á sér einhverja. Grundvöllur persónulegrar tilveru hans er óbreyttur. Hinn, sem tekur Biblíuna sér í hönd í því skyni að finna þar hjálp í vanda, lausn einhverrar ráðgátu, vit í tilver- unni og tilgang lífsins, Guð í guðvana heimi, kann að hitta þar fyrir ailt annan hlut og þýðingarmeiri en hinn fyrr nefndi. „Titrandi með tóma hönd“, kvað skáldið Matthías. í þeim einföldu orð- um er á það bent, hvernig sá maður er búinn, sem finna vill í Biblíunni eitt- hvað annað en trúarbragðasögu eða fornleifafræði. Þessi orð skáldsins verða ekki tekin sem hvatning til ann- arra. Það er tilgangslaust íyrir einn að ganga að öðrum og segja honum að standa „titrandi með tóma hönd.“ Hins vegar er líklegt, að sú stund renni upp í lífi allra manna, að þeir standi í þessum sporum. Þá hæfir að leita til Biblíunnar. Ástæðulaust er að fullyrða, að það verði ævinlega árangursrík leit. En hitt er víst, að þrásinnis gerist undrið mikla: Skyndilega verða forneskjuleg orð hinnar öldnu bókar lifandi. Þau taka að tala til lesandans, eins og mað- ur tali við mann, — og þó miklu meir. Lesandinn finnur, að þessi orð ganga honum gegnum merg og bein. Fyrri tilverugrundvöllur hans — ef einhver er — gengur skykkjum undir fótum hans, brestur og hvertur. En annar grundvöllur birtist í gegnum mistrið. Lesandinn fótar sig. Persónulegur til- verugrundvöllur hans er oröinn annar en fyrr. Og hann skynjar og trúir, að það er Guð sjálfur, sem talar til hans. 31

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.