Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 46

Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 46
kvætt, sbr. áður nefnd orð sama manns um hinn góðsama heiðingja. Hvað er hér á ferð? Getur það hugs- azt, að hér sé Jesús Kristur svikirm, — og þad af manni, sem þykist þjóna honum og ákærir aðra af mikilli vand- lætingu fyrir reynsluleysi i þeirri þjón- ustu? Ég geri mér ekki von um að hafa sprengt nokkra brú með grein minni á dögunum. En e. t. v. hefur sú stríða ræða nægt til að koma lítils háttar hreyfingu á þokuna, sem fyllir þá gjá, er ég áður nefndi og liggur um raðir íslenzkra guðfræðinga þverar. Von- andi verða nú einnig fleiri til að leggja hönd að því verki að feykja burt mistri óljósrar hugsunar og beinna svika, — svo að gjáin komi í Ijós í allri sinni ógnvekjandi breidd og dýpt. Til eru prestar, — og þeir margir, — sem á einmæli láta í Ijósi löngun til að taka þátt í baráttu gegn hjá- guðadýrkun spíritista innan íslenzku Þjóðkirkjunnar. Jafnframt viðurkenna þsir ótta sinn við að styggja „sálar- rannsóknamenn" í söfnuðum sínum. Þá vaknar spurningin: Hverjum þjón- um við, — söfnuðunum, — eða Kristi? Vonandi báðum. En ef söfnuðurinn fer aðra leið en þá, sem Kristur hefur lagt, hverjum ber okkur þá að þjóna? — Já, hverjum ber okkur þá að þjóna? Hvernig hljóðaði vígsluheit okkar? — Á stærsta degi ævi okkar hétum við því „aö prédika Guós orð hreint og ómengað, eins og það er að finna / hinum spámannlegu og postullegu rit- um, og i anda vorrar evangelisku lút- hersku kirkju, og hafa hin helgu sakra- menti um hönd samkvæmt boði Krists og með lotningu Við þessi orð ætla ég engu að auka, Þau skýra sig sjálf, — og eru hæfilegt niðurlag greinar minnar þessu sinni. IX Ritstjórn Kirkjurits hefur tjáð mér, að önnur grein birtist hér í sama tölu- blaði, — um tilveruheimspeki. Að- spurður kvað höfundur greinarinnar ekki hafa heimilað mér að lesa hana í handriti. Af þessum ástæðum má vera, að einhverjar endurtekningar komi fram í ritinu. En við svo búið verður að standa. Ég þakka greinarhöfundi fyrirfram. Hann er til þessa sá eini, sem orðið hefur við tilmælum mínum varðandi vettvang þessarar umræðu. Þau viö- brögð hans eru mér mikið ánægju- efni. Vonandi er hér á ferðinni upphaf guðfræðilegra átaka á afmarkaðra sviði en í hljóðvarpi, sjónvarpi og dag- blöðum! Ég leyfi mér að hyggja gott til næstu lotu. — Skálholti, 30. maí Heimir Steinsson. 44

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.