Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 50

Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 50
DR. BJÖRN BJÖRNSSON: Fjölskyldan w I Ijosi kristilegrar slðfræði Þau eru ærin tilefnin nú til dags, sem vekja umræður manna á milli um fjölskylduna og málefni, sem þennan félagshóp varða. Sumum kann jatn- vel að virðast sem menn kunni sér ekki hóf í þessu efni, þetta eilífa fjas um fjölskyldumál, einkum fjölskyldu- vandamál, gangi taugaveiklun næst- Það skal þegar í stað viðurkennt, að auðvitað geta umræður og vangaveltur um þessi málefni gengið út í öfgat eins og um öll önnur. Jafnframt má benda á skýringu á þessu fyrirbseri og eflaust fleiri en eina. Það fer t. d. ekki á milli mála, að ört breytilegir samfélagshættir, eins og þeir, sem við búum nú við, örva umræður og opinbet skoðanaskipti um það, sem breytinð' unum verður að bráð, og þá ekki síz{ um það, sem okkur stendur næst, t. d- um fjölskylduna og heimilið. Þar við bætist, að verulegur þáttur í þessurn breytingum er ný tækni, sem flytur um' ræður og skoðanaskipti svo að segjs inn á hvert heimili um nánast allt miH' himins og jarðar. Þá má ekki gleyma því, að við lifum á tímum sérfræði, o9 nú beina æ fleiri sérfræðingar kast' Ijósi sínu að fjölskyldunni, félags' ráðgjafar, geðlæknar, að ógleyrndum öllum þeim, sem þykjast vita betur- Eins og við er að búast vinnur kast' Ijósið sitt gagn. Ýmislegt kemur í Ijós, sem áður var dulið, og þá er tími ti1 kominn að setjast niður og ræða málin- Niðurstaðan er sú, að hjá þviverðiekk' komizt, að umræður um málefni fjðl' skyldunnar eru og verða ofarlega 3 baugi, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Í eftirfarandi erindi mínu sem og 1 hinu síðara verður enn á ný kastljós1 beint að fjölskyldunni, en í þetta sinn er það ætlað siðfræðinni að meta það’ sem í Ijós kemur. Kannski fer ég villur vegar, en móf býður í grun, að nokkurs misskilninð5 48

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.