Kirkjuritið - 01.04.1975, Side 66
Hin nýja, reisulega kirkja á kristniboSsstöSinni í Konsó. I hliSarálmu er kennslustofa biblíu-
skólans, svo og skrifstofa prestanna.
Klukkan tíu hófst svo guðsþjónustan,
og var kirkjan þá orðin þéttsetin.
Presturinn Kussía stjórnaði. Bauð
hann alla velkomna, þar á meðal hér-
aðsstjórann og frú, skólastjóra ríkis-
skólans og gestina frá hinum kristni-
boðsstöövunum. Er sungnir höfðu ver-
ið nokkrir söngvar og pistill dagsins
lesinn, steig Negash Lemma í stólinn
og predikaði út frá texta dagsins,
Matt. 10,2—15 (Jesús velur sér post-
ula og sendir þá frá sér). Hann lagði
áherzlu á, að ef Guð kallar okkur til
þjónustu, þá sér hann okkur fyrir öll-
um þörfum, og við eigum að vera fús
til að leggja það af mörkum, er Guð
ætlast til af okkur.
Þegar Negash hafði lokið máli sínu,
var komið að sjálfri vígsluathöfninni.
Fór hún fram á þá leið, að fimm stjórn-
armenn ,,prófastsdæmisins“ lásu hver
sinn texta úr Biblíunni: Sálm 93,5;
Sálm. 127,1; 1. Kron. 17,27; 1. Kon.
8,29 og 1. Kon. 9,3. Eftir ritningarlest-
64
urinn lagði Negash þessa nýju kirkju í
hendur Drottins í bæn. Var þetta stutt,
en áhrifamikil athöfn.
Að kirkjuathöfninni lokinni var urn
hundrað manns boðið aðneytaindjerra
og vodd ásamt hunangsvatni að hér-
lendum sið. Var ein barnaskólastofan
notuð til þessarar veizlumáltíðar. AlNr
veizlugestir tóku vel til matar síns, og
máttu ,,uppvörtunardömurnar“ (í þetta
skiptið kennarar okkar) hafa sig alla
við að bera á diskana og í glösin. Eftir
veizluna gengu svo heimavistarnem-
endurnir og aðrir safnaðarmenn rösk-
lega til verks við að ganga frá öllo
aftur, vaska upp og raða bekkjum og
borðum. Allt varð að vera tilbúið fyrir
nýja starfsviku.
Kæru kristniboðsvinir, við viljum
með þessum línum senda ykkur kveðj'
ur okkar og þakka ykkur fyrir, að þessi
dagur gat orðið að veruleika. Guð
blessi ykkur í þjónustunni fyrir ríki
hans.
J