Fríkirkjan - 01.07.1901, Síða 3
99
„ Vevði ]]ós!“ — í einum kafla ritgjörðarinnar leiðir hann fram
skýlaus rök fyrir því, að ekki að eins í Veslurheimi, heldur og
á Englandi og Pýzkalandi, megi nú orðið fremur heita vörn
en sókn af hendi „hinna hærri biblíurannsóknara"; en eins
og kunnugt er hefur dócentinn í „V . . . . ljósinu" hvað eptir
annað staðhæft, að engum menntuðum guðfræðingi detti leng-
ur í hug að vefengja „kritíkina", það só að eins „heimskan og
fáfræðin", er leyfl sér slíkt. Þessum kafla ritgjörðar séra B.,
er var rökstuddur með tilvitnunum og tilnefndir margir bibliu-
fróðir menn úr andstæðingaflokki „hærri kritíkurinnar", hefur
„Verði ljós!“ aigjörlega leitt hjá sér að svara. Og með því
óliklegt er að dócentinn virði slíkt ekki svars, þá liggur mjög
nærri að ætla, að hann treysti sér ekki til að svara því, geti
ekki mælt á móti því, er síra Björn heldur fram, án þess að
mæla móti sannleikanum.
Grein sú, er vér flytjum nú, er þriðji kafli ritgjörðar
síra Bjarnar:
„III. KRISTUR OO „KRITÍKIN."
„I þessum þætti greinar minnar ætla ég fyrst að sýna
nokkur dæmi þess, að frelsari vor Jesús Kristur litur allt öðrum
augum á gamla testamentið, en talsmenn „biblíurannsóknanna"
gjöra. Eptir það skal ég sýna, hvaða stefnu þeir neyðast til
að taka, sem meta tilgátur sínar meira en vitnisburð Krists.
Loks skal ég svo skýra frá, hvert „hærri kritíkin11 er komin,
að því er snertir kenninguna um guðdóm Krists.
„Hærri kritíkin" ken'nir, að Móses Iiafl ekki samið Móses-
bækurnar; Kristur segir hann hafi samið þær.
Hér skulu tilfærð fá af mörgum dæmum þess, að Kristur
telji Móses höfund Mósebókanna:
Jesús sagði við Gyðinga: „Gaf Móses yður ekki lögmálið?
Og enginn yðar heldur þó lögmálið“ (Jóh. 7. 19). í dæmi-
sögunni lætur Jesús Abraham segja við ríka manninn: „þeir
hafa Móses og spámennina; hlýði þeir þeim“ (Lúk. 16. 29).
„Móses" táknar hér auðvitað lögmálsbækurnar, eins og „spá-
mennirnir" merkja spádómsbækurnar. Lögmálið er hér líka
talið á undan spádómunum. Jesús ávítar Gyðinga með þess-
um orðum: ,,Ef þer tryðuð Móses, þá tryðuð þér mér, því
hann hefur skrifað um mig; en ef þér trúið ekki hans bókum,