Fríkirkjan - 01.07.1901, Qupperneq 9

Fríkirkjan - 01.07.1901, Qupperneq 9
105' Tómas gaf ; lit.lu ungfrúnni, nákVæmar gætur, áður en nokkur kunningsskapur liófst milli þeirra. Hann var ieikinn í að búa ýmislegt smávegis til, sem smáfólkinu þykir mjög mikið i varið, og nú hugsaði hann sér að nota þessa kunnáttu sína. Hann gat búið til smákarfir úr kirsiberjasteinum og hann kunni að skera alls konar skringilegar myndir í hnotuskeljar, hann gat smíðað allavega leikföng úr ýmsu efni og með ýmsu lagi. Það var nú samt sem áður enginn hægðarleikur að hand- sama litlu stúlkuna; hún stóð ekki lengi við í einu á hverj- um staðnum. „Hvað heitir litla ungfrúin?" spurði Tómas einn dag; honum þótti.þá bera ve) í veiði að spyrja að heiti hennar. „Evangelina St. Clare,“ sagði litla stúlkan, „en pabbi og allir kalla mig nú reyndar Evu; en hvað heitir þú? „Ég heiti nú Tómas; litlu börnin heima í.Kentucky voru vön að kalla mig Tómas frænda." „Þá ætla ég líka að kalla þig Tómas frænda, a,f því mér fellur þú svo vel í geð,“ sagði Eva. „Jæja þá, Tómas frændi, hvert ertu að fara.“ „Ég veit það ekki, ungfrú Eva.“ „Veiztu það ekki?“ sagði Eva. „Nei, það á að selja mig einhverjum, ég veit ekkert hverjum." „Pabbi minn getur keypt þig,“ sagði Eva fljótlega, „og ef hann kaupir þig, þá skaltu eiga gott; ég ætia að biðja hann um það strax í dag.“ „Ég þakka þér fyrir, litla ungfrú mín,“ sagði Tómas. í þessu bili nam skipið staðar við bryggju eina, til þess að taka timbur; Eva heyrði að faðir hennar kaliaði á hana, og hljóp hún til hans og gekk um þilfarið við hlið hans. Tóm- as stóð upp og gekk fram á skipið, til þess að hjálpa til með að ná viðnum út á skipið. Eva og faðir hennar stóðu við borðstokkinn og horfðu á þegar skipinu var lagt frá landi. Skrúfa skipsins var tekin að hreifast; óðar en varði tók skipið snöggan kipp, Eva missti jafnvægið og féll á bak aptur niður i vatnið við hliðina á skip- inu. Faðir hennar, sem naumast vissi hvað hann gjörði, ætl-

x

Fríkirkjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.