Fríkirkjan - 01.07.1901, Page 16
112
— þetta „allt", sem var eiginlega „ekki neitt", þá mættum
vér einum af prestunum. Hann hafði ekki lokið upp munni
sínum allan tímann. „Þú sparar tungu þina hér“, sögðum
vér, því maðurinn er prýðilega máli farinn. „Æ, hvað á maður
að vera að tala um tóman hégóma", svaraði hann. Auðvitað
þegjum vér yfir nafni þessa prests, eins og steinn. En — vér
hefðum gjört hið sama sem hann, þagað; og vér hefðum svarað
eins og hann.
------o«o«c>---
„Tíu toga að ofan, en tólf að neðan.“
Hlutfallið milli heimastjórnarmanna og Valtýinga í neðri
deild alþingis í sumar er einmitt þetta gamla hlutfall 10 : 12,
tíu að ofan og tólf að neðan, þegar forseti deildarinnar, sem
er heimastjórnarmaðmy er talinn frá; þvi hann hefur ekki at-
kvæðisrétt, má ekki ioga. Og eins og við var að búast og
kunnugt er orðið, báru þeir sigur úr býtum, sem toguðu að
neðan.
Nú er verið að togast á um annað þýðingarmikið málefni í
þessari sömu neðri deild alþingis — málefni, sem er þungað af
afleiðingum fyrir alda og óborna, þeim til blessunar eða —
bölvunar. Ekki vitum vér með neinni vissu, hve margir toga
þar að ofan og hve margir að neðan; en allir hugsandi menn
hljóta að veita meðferð málsins nákvæma eptirtekt að svo
miklu leyti, sein þeir eiga kost á. Það munum vér og gjöra,
og skýra síðar frá bæði vopnaviðskiptum og leikslokum. —
En málefni þetta er enginn leikur. fað er í einu orði þetta:
Á hér að rísa upp
landspítali eða — kajólskur spítali?
Rri 1 rVi Q n Ukemur út einu sinni á mánuði; verður með
)) ^ 1 -ttVll IVJ ctli myndum. lvostar hér á landi 1 kr. 50 au. —
erlendis 2 kr. — árgangurinn. Borgist fyrir lok júni-mánaðar. Pœst
Reykjavík í Sigf. bókaverzl. Eymundssonar; úti um land hjá bókasölum
og (ef fyrirfram er borgað) lijá póstafgroiðslu- og bréfhirðingamönnum.
Utgefandi: Lárus Halldórsson Beykjavík.
Aldnr j)ient8miðja.