Vekjarinn - 01.01.1906, Síða 7

Vekjarinn - 01.01.1906, Síða 7
7 borgið. Fagnaðaróp og húrrahróp kveða við frá mannfjöldanum fyrir hetjunni, semnú býst til að stökkva sjálfur niður í björgunarnetið, í sama bili heyrist ógurlegur brestur og fólkið hopar á burt óttaslegið. Múrveggurinn hrynur og björgunarmaðurinn ótrauði verður fyrir grjótinu. ótal höndur eru á lofti til að hjálpa hon- um út úr rústunum, en læknirinn liristir höf- uðið, þegar hann sér hann. Læknishjálp kem- ur að litlu haldi, hann er svo limlestur og brotinn. Þó er gleðisvipur á honum: »Guði sé lof að Fjólu er borgið«, segir hann. Dauðinn er hraðstígur; brátt er sú stund komin að kristniboðinn fær að mæta frelsara sínum, honum, sem sagði: »Það sem þér hafið gjört einhverjum af minstu bræðrum mínum, það hafið þér gjört mér«. Hann veit að lífsvonin er úti, eða öllu heldur, að nú eru brátt allar þjáningar úti, en lífið sjálft fyrir höndum, — en hugurinn hvarflar til hennar, sem hefir beðið eftir hon- um í ellefu ár. »Yið ætluðum að gil'tast núna í vikunni«, segir hann í hálfum hljóðum, eins og við sjálfan sig. Læknirinn segir, að enginn tími sé til að láta sækja unnustu hans. Kristniboðinn biður þá um skriffæri. —

x

Vekjarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.