Vekjarinn - 01.01.1906, Blaðsíða 41
41
eins og verið sé að halda yfir honum likræðucí,
eða: »Þetta er líkræðu sannleiki*. Því sagði
Klemp hinn kaþólski, sem var í Landa-
' koti, einu sinnivið mig: »Þér þurfið sízt að
álasa oss, þótt kirkja vor gjöri einstaka mann
að dýrðlingi; eg veit ekki betur en að prest-
ar yðar gjöri hvern mann að dýrðlingi jafn-
óðum og þeir deyja«.
Alt þetta er slæmt, en þó er það ekki
eins skaðlegt eins og þegar prestarnir fullyrða
um sáluhjálp hvers látins manns, og fara þá
stundum svo langt í ósannindunum að þeim
nægir ekki að segja, að Kristur hafi hjálpað
þeim framliðna til sáluhjálpar. Þeir »gætn-
> ari« segja það samt, en sumir þeirra segja
þaðjafnt um alla, eins um þá, sem þeim eru
alveg ókunnugir, eða þá, sem enginn vissi til
að hefðu elskað Krist.
Það er eins og sumum hinna likræðu-
smiðanna finnist ekki nógu mikið hrós að
segja, að sá framliðni hafi þurft á Kristi að
halda sér til sáluhjálpar. Aðrir eins dánu-
menn og eru í þeirra söfnuði geta svo sem
unnið sér sjálfir inn himnaríkis vist. Þótt
r slíkur prestur treysti sér ekki til að nefna
nema einn verulegan kost í fari hins fram-
liðna, þá er teygt úr honum á allar lundir
með ýmsu málskrúði, og ekki hirt um, þótt
kunnugum sýnist, að hann vera orðinn svo