Vekjarinn - 01.01.1906, Page 32

Vekjarinn - 01.01.1906, Page 32
32 sem kirkjunni er minkun að, og ekki má láta viðgángast. Að sönnu má tala vingjarnleg orð um liinn látna, ef presturinn heíir verið kunnug- ur hónum, svo að hann sé viss um að fara með sannleikann einan. En úr því að kirkj- an á að jarða og þjónn kirkjunnar að tala, má ekki gleyma, að hér er mikilsverðara um- talsefni en um tímanlegar og borgaralegar framkvæmdir hins látna. Kirkjan heíir hér ekki nema tvö umræðuefni: Sáluhjálp eða glötun mannanna, þegar náðartíminn er út- runninn. Líkræðan á að vera um það, ef presturinn vill vera trúr starfsmaður kirkjunn- ar og Drottins kirkjunnar. Það verður að segjast, að hér sé náðartíð mannsins, og nú séu eilíf örlög. þessa manns ákveðin. — Hitt er annað mál, hvort presturinn getur talað mikið um hinn látna í þessu tilliti. Það verð- ur aðallega að fara eftir því, hvað prestinum hefir verið kunnugt um hann í þessu efni. Þeir menn eru til, sem presturinn veit ekki annað en sorglegt um í þessu efni; mun hann þá eðlilega telja skyldu sína, að tala sem allra minst um það, þar sem það er til einskis gagns að tala um alt hið sorglega, úr þvi það er nú orðið ofseint. Þar sem vantrúin eða guðleysið hefir látið sérstaklega til sín taka, mun þó presturinn naumast komast hjá að

x

Vekjarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.