Verði ljós - 01.04.1898, Blaðsíða 3

Verði ljós - 01.04.1898, Blaðsíða 3
51 Jeg sá, hani) á æskunnar sólbjörtum degi, er sæll hóf jeg göngu á framsóknarvegi, þá benti hann sál miuni himins til hæða frá lijegómleik tómlegra veraldargæða. Jeg sá haun er æfinnar sól tók að lækka og saklausu gleðinnar ljósum að fækka, en sorgin mig grætti og syndin mig heygði og sekum á kuje fyrir drottin mjer fleygði. Þá fyrst sá jeg djúpið guðs dýrðlegu mildi og dóma guðs alvizku hlakkandi skildi, þá fyrst, lilaut jeg ráðningu gátunnar góðu og gleðitár hrennheit- úr auguin injer flóðu. Þá fyrst gaztu, sála min, hvíldina hlotið og hlekkina sáru til fuls af þjer brotið, fyrst þá jókst þjer, lijarta mitt, þor til að segja: „Með þjer vil jeg, Jesú minn! lifa og deyja“. Þá fyrst gat jeg öruggur höfðinu hallað að hjarta þess vinar, sem einn hefir kallað og sagt: Jeg vil lækna hvert svíðandi sárið og svalaudi gjöra livert iðrunartárið. Því get jeg nú liugglaður liorft fram á dagiun og liniga sjeð lífssól í nákaldan sæinn, því haun er mjer nálægur, hönd hans mig styður, i hjarta mjer ríkir lians inndæli friður. Hann flytur mig óhultan feigðar um djúpin til friðstranda heim bak við skýbelta-lijúpiun, þars aldregi röðull guðs renuur til viðar, en ríkir að eilífu hátign guðs friðar. Þá barn verð jeg aptur með barnslundu hreinni, sem barn guðs ei framar af sorg veit jeg neiuni, hver grátur er stiltur, hver gáta er ráðin, mig gleður að eilifu liimneska náðin. * * <OO^OOo-

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.