Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1907, Blaðsíða 14
38 NÝAR KVÖLDVÖKUR. hann farinn að elska hana í tilbót? Heiminn gat hann nú orðið ekki hugsað sér án henn- ar, — en hvers vegna? Rað var hann ekki að rekja í sundur þá. En hann fann það var svo nú, þegar hún væri í hættu ef til vildi. Hann hlustaði með ofurkvíða. Orðaskifti heyrðust innan úr húsinu; Honum fanst hann heyra hennar málróm. Eitthvað nýtt blandaðist inn í, hátt fagnaðarýlfur í hundi, svo heyrði hann skella högg, og skræk á eftir, svo heyrði hann hana kalla: «Zeppa, Zeppa.» Max Odrich spratt úr felunum eins og kólfi væri skotið. Ut í strætismunnanum sá hann vopnaðan löggæzlumann, sem horfði snöggvast inn í götukytruna. Hann gaf honum bendingu um að koma, enn þaut sjálfur inn í húsið. Herbergisdyrnar vinstra megin voru læstar, en hurðin svignaði fyrir einhverju þungu, er á hana lagðist. Svo var að sjá, sem ein- hver vildi fara út, en einhver annar varnaði honum útgöngu. «Sleppið þér mér,— Hvað ætlið þér?— “ Retta óp kom frá Agötu. «Hvað ætla eg? Að láta hvorki kvenmann né kvikindi koma mér í bölvun. Eg er slopp- inn út bara fyrir þrem vikum; haldið þér, að eg vilji fara í svartholið aftur fyrir yðar skuld? Rér eða eg! Fyist ég vil ekki, svo verðið þér að fara úr vegi. Sjáið þér þennanhníf? Horn- grýtis kvikindiðl* Hundurinn reif ýlandi í hurðina. «Ef þér segið eitt orð um að þér eigið þenna hund, þá skuluð þér kenna á kutanum!» «Hjálp! Hjálp!" Max Odrich hljóp á hurðina með því afli, sem honum var gefið. Hún var orðin feysk- in og lét undan, og brotnaði öll í sundur. Dyrnar göptu þar opnar. Agata rak upp hátt hljóð og hljóp í fang honnm. Hann þreif þegar báðum örmum utan um hana. Hundasalinn krossbölvaði. »Ut, út úr mín- um húsum.» Málarinn sá eitthvað bregða fyrir útundan sér; hann fann eitthvað kalt koma við hand- legginn á sér, og stíngandi sársauka á eftir. «Guð komi til, þér eruð særður, hann hef- ir stungið yður,» æpti Agata upp. Max Odrich sortnaði snöggvast fyrir aug- um. Hann varð eins og utan við sig, og eins og misti í svipinn ráð og rænu. En liann herti sig upp og hristi af sér ómeginið. Hann sá að hundurinn flaug grimdarlega á manninn, hann gat varla varizt honum. Löggæzlumað- urinn kom nú inn í þessum svifum, og tók í hnakkadrambið á manninum, sem barðist sem óður væri. Málarinn skeytti ekki sári sínu, þreif líka til hans, og loks tókst þeim báðum að fella þessa óhemju til jarðar. Agata náði sér skjótt eftir hræðsluna, og sagði nú löggæzlumanninum í fám orðum frá, hvern- ig í þessu öllu lægi. Skarkalinn, sem af þessu öllu stafaði, kom lífi í þetta þrönga stræti. Dyr voru opnaðar, og höfuð komu út úr hverjum glugga. Lög- gæzlumaðurinn fór með þorparann með sér og heill herskari af skríl á eftir. Max Odrich batt vasaklútnum sínum utan um handlegginn á sér. Nú, þegar hættan var af staðin og Agötu borgið, kom sjálfs lians sektarmeðvitund með tvöföldu afli yfir hann. Hann bar fyrir sár sitt og ætlaði að fara, þegar þau voru komin út úr þröngu götunni út á aðalstrætið. «Hvað hugsið þér? Eg vildi tjá yður heitar þakkir— en hvað megna orðin tóm. Eg verð samt í skuld við yður, þó að eg hafi gert alt til þess að verða það ekki. Rað hefir víst átt að ráðast svo. Og svo ætlið þér að yfirgefa mig;» «Bara handleggsins vegna,» afsakaði hann sig; «eg sé þarna er baðari; eg ætla að láta binda þar um sárið.» «Hvað eruð þér að hugsa? Hjá baðara! Læknirinn minn gerir það miklu betur. Kom- ið þér nú!» Hún hafði gefið vagni þar í nándinni bend- ingu, og rak Odrich upp í liann. Hann sá að öll mótstaða var til einskis og lét undan. Hún settist hjá honum á forsætið;

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.