Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Side 2

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Side 2
74 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. «Hvernig stefnir stýrið?» spurði Osvald og gekk aftur á skipið. «Einn hæl á kulborða.» «Eg vil taka gaffalseglið ofan, hvernig sem svo fer» sagði stýrimaður; «aftur á piltar, og dragið ofan gaffalseglið, haldið fast í skautið, þangað til það er komið ofan, því annars hang- ir það og berst og lemst um, og hræðir lífið úr konunni, sem með okkur er. Fái eg nokk- urntíma ráð á skipi, skal eg ekki hafa kven- fólk innanborðs. Peningar skulu ekki freista mín til þess.« Eldingunum riarndi nú niður óðfluga í tind- óttum hornalínum, og dundu þrumurnar þeg- ar á eftir; sást á því að veðrið var að færast nær, það kom fossandi steypiregn, ókjörin öll dundu úr loftinu; vindin staðkyrði —svo rak á byl — svo kyrði aftur, svo gekk hann til á átt- innijOgrennblautseglin börðust utn fnösturográr. «Upp með stýrið, maður» kallaði Osvald; rétt í því brá við Ieiftri, svo að allir urðu hálfblindir, og svo kom þruma, sem gerði alla agndofa á þilfarinu. Seglin löfðu niður af rán- um, regnið fossaði beint niður á þilfarið, skip- ið ruggaðifram og aftur í dældunumá milli stór- sjóanna — svo várð alt í einu koldimt. «Ofan, einhver ykkar, og segið skipstjóran- um til, > sagði Osvald, »nú fáum við það að fullu. Reyrið rárnar fastar, piltar; herðið ykk- ur nú; stórseglið að tarna ætti að hefta, og enda að vera búið að því —en eg er ekki skip- stjóri; reynið nú að reyra rárnar vel drengir,» hélt hann áfram, «Iátið nú ganga rösldega. [’etta er ekki barnameðfæri.« Af því að örðugt var að finna böndin og rétta þau á milii í kolniðamyrkrinu, og svo iamdi stórrigningin á augu þeirra, gátu háset- arnir ekki framkvæmt skipun stýrimanns svo fljótt sem þurft hefði; og áður en þeir voru búnir með það sem þeir áttu að gera, og áð- ur en Ingram skipstjóri var kominn upp á þil- farið, kom ofviðrið alt í einu úr þveröfugri átt við það, sem áður var, seglin slógu öfugt við, og skipinu fleygði á hliðina. Stjórnaranum slengdi út yfir stýrishjólið, en hinum hásetun- um, sem stóðu hjá Osvald, fleygði, ásamt lausum köðlum og öllu öðru lausu dóti, er á þilfarinu var, út í straumgötin. Par lá öll hrúgan sprildandi í vatninu, og hásetarnir brutust um að Iosa sig úr þessari þvættu og komast upp. Við veltu þessa hrukku allir upp sem niðri voru, og héldu að skipið væri að sökkva, og kontti þjótandi upp þessa einu lúku, sem ólokuð var, í eintómri skyrtunni, og með fötin sín á handleggnum, til þess að klæða sig uppi, ef þeim yrði svo langs Iífs auðið. Osvald var fyrstur til að klifrast upp á hlé- borða. Hann náði til stýrisins, og lagði það alveg upp. Ingram skipstjóri náði líka aftur þangað. Þar er samkomustaður allra góðra sjómanna í öðrum eins dauðans háska og hér er verið að lýsa. En alt veittist að í einu: þyt- urin í ofviðrinu, regnið og sjávarsletturnar, sem bíinduðu þ'á, öldurnar, sem rugluðust allar við það að vindurinn sneri sér, og fossuðu nú yfir skipið í stóreflis brotsjóum, ólætin í skruggunuin og svartainyrkrið, sem var sam- fara öllum þessum ósköpum, hallinn á.skipinu, sem knúði þá til þess að skríða um þilfarið, það-sem .þeir þurftu að hreyfa sig, — — nlt. þetta tók fyrir alt samtal um stund, sem hefði getað orðið skipinu eða skipshöfninni að liði. Einka vinur þeirra í þessum höfuðskepnanna hamförum voru eldingarnar —og hörmulegt er að vera svo staddur að eiga eldingarnar einar að einkavin —en hin skörpu og hornóttu Ijós þeirra, sem rigndi niður alt í kring, sýndu þeim að eins, hvernig þarna var komið; en þó að horfurnar væru ógurlegar, þá var þó betra að vita hvernig komið var, heldur en að vera í myrkri einu og óvissu. Fyrir þá sem eru van- ir hættum og harðneskjulífi sjómanna eru eng- in orð til, sem t^la þyngra til ímyndunarafls- ins, eða skýra betur fyrir oss kraft og fegurð ens gamla gríska skálds, en þessi bæn Ajants': «Drottinn himins og jarðar, konungur, faðir, heyr auðmjúklega bæn mína: dreif þessu skýi, og lát himinljósið skína aftur; leyf mér ein- ungis að sjá það.» Um annað biður Ajant ekki; þó að jörðin fyrirfarist, svo verði þint.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.